Dómsmálaráðuneytið
Dómsmálaráðuneytið
Dómsmálaráðuneytið

Finnst þér gaman að greina gögn og vinna með fólki?

Dómsmálaráðuneytið leitar að öflugum og drífandi rekstrarstjóra til að leiða og samhæfa verkefni sem snúa að rekstri ráðuneytisins í heild sinni ásamt öðrum verkefnum í tengslum við mannauðsmál á skrifstofu fjármála. Skrifstofan fer meðal annars með málefni er varða fjármál ráðuneytisins og undirstofnana þess, fjármálaáætlun og fjárlög, húsnæðisverkefni, stafræn verkefni, skjalamál og rekstur ráðuneytisins.

Helstu verkefni og ábyrgð

Rekstrarstjóri hefur yfirumsjón með rekstraráætlun ráðuneytisins og eftirfylgni hennar. Starfið felur jafnframt í sér umsjón með verkefnum á sviði mannauðsmála, einkum túlkun og eftirfylgni kjara- og stofnanasamninga. Rekstrarstjóri ber megin ábyrgð á öðrum fjárlagaliðum, innkaupum, eignasafni og þjónustusamningum ráðuneytisins. Verkefnin snúa auk þess að fjármálum stofnana, greiningum, framkvæmd fjárlaga og virkri þátttöku í fjármálateymi ráðuneytisins. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meistaranám í viðskiptafræði, verkfræði, reikningsskilum eða önnur menntun sem nýtist í starfi.  
  • Þekking og reynsla af fjármálum hins opinbera er krafa.  
  • Þekking og reynsla af kjara- og stofnanasamningum er krafa.  
  • Þekking og reynsla af verkefnastjórnun er kostur.   
  • Þekking og reynsla af stefnumótun og greiningu og innleiðingu umbóta er kostur. 
  • Fagmennska, frumkvæði, drifkraftur og lausnamiðuð hugsun.  
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti. 
Auglýsing birt23. júlí 2026
Umsóknarfrestur10. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Skúlagata 4, 101 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar