Dómsmálaráðuneytið
Dómsmálaráðuneytið
Dómsmálaráðuneytið

Viltu taka þátt í baráttunni gegn netbrotum?

Dómsmálaráðuneytið leitar af öflugum og drífandi lögfræðingi með brennandi áhuga á netbrotum til starfa á skrifstofu alþjóðamála. Skrifstofan fer með málefni afbrotavarna, landamæravörslu og útlendinga og meðal málaflokka eru aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi, peningaþvætti, spilling og mútur, netbrot og varnir gegn hryðjuverkum og fjármögnun þeirra.

Helstu verkefni og ábyrgð

Leitað er að lögfræðingi til þess að vinna að verkefnum er varða netbrot, alþjóðlega sakamálaaðstoð, varnir gegn hryðjuverkum og fjármögnun þeirra. Í starfinu felst m.a. stefnumótun á málefnasviðinu, umsjón með viðeigandi löggjöf, reglugerðum og stjórnsýsluframkvæmd, auk upplýsingagjafar til Alþingis og fyrirsvar gagnvart einstaklingum, hagsmunaaðilum og félagasamtökum á málefnasviðinu.  

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Embættis- eða meistarapróf í lögfræði.  
  • Þekking og reynsla af stjórnsýslurétti.  
  • Þekking eða áhugi á tæknilögfræði í breiðu samhengi. 
  • Þekking og reynsla af alþjóðlegu samstarfi er kostur.  
  • Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum. 
  • Fagmennska, frumkvæði, drifkraftur og lausnamiðuð hugsun.  
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti. 
Auglýsing birt16. júlí 2026
Umsóknarfrestur5. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Skúlagata 4, 101 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar