

Deildarstjóri framkvæmda og rekstrar á HVest Patreksfirði
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða leitar að metnaðarfullum, jákvæðum og framsýnum leiðtoga í starf deildarstjóra framkvæmda og rekstrar á Patreksfirði. Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra fjármála og rekstrar, situr í rekstrarstjórn og tekur þátt í formlegu starfi deildarstjóra hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða.
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 270 manns starfa á fjórum megin starfsstöðvum. Þar af eru rúmlega 40 starfsmenn á Patreksfirði á heilsugæslu, framkvæmda og rekstrardeild, legudeild og endurhæfingu. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og lögð er áhersla á traust og jákvæðni í samskiptum.
Boðið er upp á góða aðlögun í upphafi starfs.
-
Sinnir og útdeilir verkefnum sem heyra undir deild framkvæmda og rekstrar
-
Leiðir áætlanagerð og stefnumótun fyrir deild framkvæmda og rekstrar í samstarfi framkvæmdastjóra fjármála og rekstrar.
-
Stýrir rekstrarstjórn HVest á Patreksfirði, sem er formlegur stjórnunarvettvangur svæðis/deilda og stýrir fundum hennar.
-
Ber ábyrgð á að farið sé eftir lögum, reglum, kjarasamningum og öðrum þeim samningum sem gilda um rekstur HVest.
-
Tekur þátt í að samræma vinnulag og þjónustu milli starfsstöðva og stuðlar að samnýtingu og hagkvæmni í rekstri, m.a. með nýtingu mannafla og í innkaupum.
-
Innkaup og samskipti við birgja og flutningsaðila.
-
Er einn af lykilstarfsmönnum þegar almannavarnarástand ríkir. Sér um að upplýsingar um starfsmenn séu uppfærðar í almannavarnaráætlun og ber ábyrgð á kynningu hennar á deildum.
-
Samskipti við Framkvæmdasýsluna-Ríkiseignir og ýmis verkefni tengd fasteignum svæðisins.
-
Umsýsla varðandi leiguíbúðir og bifreiðar á vegum HVest á Patreksfirði.
-
Á sæti í rekstarstjórn HVest.
-
Umsjón með viðhaldsverkefnum á fasteignum og lóðaumsjón s.s. snjómokstur, sláttur o.fl.
-
Getur gengið í störf annarra starfsmanna deildarinnar.
-
Reynsla sem nýtist í starfi
-
Iðnmenntun kostur
-
Reynsla af mannaforráðum eða stjórnun æskileg
-
Góð íslenskukunnátta er kostur
-
Áhugi á umbótaverkefnum og teymisvinnu
-
Góðir leiðtoga- og samskiptahæfileikar
-
Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði
-
Áreiðanleiki, frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
-
Áhugi á þróun og uppbyggingu Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða
Íslenska
Enska










