

Söluráðgjafi með tæknilega innsýn óskast - Frumkvæði og þjónustulund
Við leitum að nýjum samstarfsmanni sem mun vinna náið með fimm manna teymi á skrifstofu NTI í Reykjavík. Við bjóðum spennandi starf hjá einum af leiðandi þjónustuaðilum á Norðurlöndum á sviði hönnunar-, verkfræði- og samstarfslausna fyrir framleiðslu-, véla og mannvirkjaiðnaðinn.
Þetta er frábært tækifæri fyrir einstakling sem er lausnamiðaður, hefur ástríðu fyrir sölu og að veita framúrskarandi þjónustu. Viðkomandi mun öðlast víðtæka reynslu af lausna- og ráðgjafasölu.
Við óskum eftir sjálfstæðum einstakling sem er:
- Fljót/ur að læra og tileinka sér nýjungar
- Áhugasamur og drífandi liðsmaður
- Vinnusöm/samur og markmiðadrifin/n
- Hugmyndarík/ur og skipulagður eða skipulögð
Þægilegt vinnuumhverfi uppfullt af tækifærum, jákvætt andrúmsloft og fjölþjóðlegt.
NTI er fjárhagslega sterkt, markaðsleiðandi og annað af stærstu fyrirtækjum á þessu svið í Evrópu. Öflugt í nýsköpun, með víðtækt og spennandi þjónustu úrval auk þess hæft samstarfsfólk.
Við gerum ráð fyrir að umsækjandinn sýni frumkvæði, hafir tæknilega innsýn og nýtir meðal annars gervigreindarverkfæri í daglegum störfum. Að hann sé skipulögð/skipulagður, áreiðanleg/ur með sterka þjónustulund og á auðvelt með að vinna með sölukerfi og -ferla. Hafi viðeigandi bakgrunn, með brennandi áhuga fyrir ráðgjöf og sölu tæknilausna.
Sem nýr samstarfsmaður…
- gengur þú til liðs við fyrirtæki með áherslu á jákvætt vinnuumhverfi og sterkan liðsanda.
- munt þú eiga fjölbreytta vinnudaga með spennandi tækifærum í líflegu umhverfi.
Við gerum ráð fyrir að umsækjandi:
- Tali, les og skrifi íslensku og ensku mjög vel
- Hafi reynslu af því að vinna með upplýsinga- og tæknikerfi
- Hafi mikinn áhuga á tæknimálum og nýjungum, jafnvel tæknimenntaður/uð.
Enska
Íslenska
Danska










