TACTICA
TACTICA
TACTICA

TACTICA leitar að tæknimanni

Ert þú þaulvanur tæknimaður sem hefur mikla reynslu af uppsetningu, bilanagreiningu og rekstri tölvu- og netkerfa?

Þá erum við að leita að þér í teymið okkar í Kópavoginn!

Tæknimenn Tactica sinna innleiðingu og rekstri á tölvu- og netkerfum viðskiptavina ásamt því að veita ráðgjöf í umbótarverkefnum.

Helstu verkefni og ábyrgð

Innleiðing, uppsetning og rekstur á Microsoft lausnum

Innleiðing, uppsetning og rekstur á netkerfum

Innleiðing, uppsetning og rekstur á tölvukerfum

Bilanagreining og viðhald upplýsingatæknikerfa

Þjónusta og ráðgjöf til viðskiptavina

Greining og úttektir á umhverfum viðskiptavina

Ráðgjöf og áætlanagerð varðandi úrbætur

Samskipti við viðskiptavini og eftirfylgni í þjónustumálum

Uppsetning og skjölun kerfishandbókar á umhverfi viðskiptavina

Menntunar- og hæfniskröfur

Reynsla af sambærilegu starfi

Samskiptahæfni og jákvætt viðmót í þjónustu

Geta unnið í teymi og sjálfstætt

Breið tækniþekking og áhugi á að læra nýja hluti

Lausnamiðað hugarfar

Góð þekking á Windows umhverfi og netkerfum

Reynsla af Microsoft 365 og skýjaþjónustum

Þekking á Google lausnum

Bakgrunnur sem kerfisstjóri er kostur

Fríðindi í starfi
  • Samgöngustyrkur
  • Farsímaáskrift og nettenging
  • Niðurgreiddur heitur matur í hádeginu
  • Orkudrykkir og sódavatn, við eigum það allt!
Um TACTICA

Hjá TACTICA starfar þéttur hópur sérfræðinga við að leysa úr vanda og innleiða nútímalegar lausnir sem auðvelda rekstur fyrirtækja. 

Auglýsing birt14. júlí 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Smáratorg 3, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar