
Kaldvík hf.
Kaldvík er ört vaxandi fyrirtæki í íslensku laxeldi með starfsemi víða um land. Við framleiðum hágæða lax í einstökum náttúruaðstæðum Íslands og leggjum mikla áherslu á gæði og ábyrg vinnubrögð.
Hjá okkur starfar öflugur hópur fólks með fjölbreyttan bakgrunn sem sameinast um að byggja upp sterkt og framsækið fyrirtæki. Við leggjum áherslu á gott samstarf, jákvætt starfsumhverfi og tækifæri fyrir starfsfólk til að vaxa í starfi.
Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í uppbyggingu alþjóðlegs matvælafyrirtækis með rætur í íslensku samfélagi, þá gæti Kaldvík verið rétti staðurinn fyrir þig.

Gæðasérfræðingur - sjór
Kaldvík leitar að öflugum gæðasérfræðingi til starfa í gæðateymi félagsins á Austfjörðum.
Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á fiskeldi og stöðugum umbótum og vill taka virkan þátt í að byggja upp framreiðslu Kaldvíkur
Starfið er fjölbreytt og felur í sér náið samstarf við starfsfólk og stjórnendur á eldisstöðvum, líffræðiteymi og aðra sérfræðinga innan Kaldvíkur. Gæðasérfræðingur gegnir jafnframt mikilvægu faglegu hlutverki í þróun verklags og gæðastarfs innan sjókvíaeldis félagsins.
Starfið heyrir undir gæðastjóra Kaldvíkur og krefst viðveru á starfsstöðvum félagsins á Austfjörðum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón og eftirfylgni með gæðaverklagi á sjókvíaeldisstöðvum Kaldvíkur á Austfjörðum.
- Eftirlit með gæðum, velferð fisks og meðhöndlun.
- Þróun, skrásetning og eftirfylgni með verklagsreglum og gátlistum.
- Greining frávika, rótargreining og eftirfylgni úrbóta.
- Náið samstarf við stöðvarstjóra, líffræðiteymi og framleiðsluteymi.
- Stýring og yfirsýn í gæðakerfi félagsins
- Fagleg leiðsögn og stuðningur við starfsfólk varðandi gæðamál og bestu starfshætti.
- Þátttaka í vottunum og úttektum, meðal annars tengdum ASC, BRC og öðrum viðeigandi stöðlum.
- Eftirfylgni og miðlun og þátttaka í reglulegri yfirferð á árangri og gæðamálum.
- Þjálfun og fræðsla starfsfólks um gæðaverklag og gæðakröfur.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Hefur menntun eða reynslu á sviði fiskeldis, matvæla, dýralækninga eða á sambærilegu sviði. Hagnýt reynsla getur vegið upp á móti formlegri menntun.
- Frumkvæði, áhuga og metnað í starfi
- Góða samskiptahæfni og jákvætt hugarfar
- Getu til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi
- Er tilbúinn að vera mikið á vettvangi og ferðast á milli starfsstöðva Kaldvíkur á Austfjörðum.
- Hefur góða tæknilega færni.
- Hefur góða færni í skrásetningu, eftirfylgni og miðlun upplýsinga.
- Getur átt góð samskipti á íslensku og/eða ensku.
Fríðindi í starfi
- Fæði
- Heilsu- og menntunarstyrkir
- Góð vinnuaðstaða og tækifæri til útivistar
- Fjölskylduvænn vinnustaður
Auglýsing birt10. september 2026
Umsóknarfrestur5. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Strandgata 18, 735 Eskifjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Þjónustufulltrúi
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Origo leitar að reynsluboltum í Business Central
Origo ehf.

Sérfræðingur í rannsóknaþjónustu
Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands

Þjónustu- og gæðastjóri | Guest Experience & Quality Manager
Íslandshótel

Þjónustufulltrúi á skrifstofu á Seyðisfirði
Mannauðs- og þjónustusvið

Sérfræðingur Þjónustumiðju
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Vanur bókari óskast
Tölvutek

Fiskeldisfræðingur óskast í seiðaeldi
Samherji fiskeldi ehf.

Farm Technician
Arctic Fish

Facilities Manager and Commercial Diving Supervisor
The Beluga Operating Company ehf.

Fjármálasérfræðingur
BYKO

Bókari,launafulltrúi
Vörukaup ehf