
Vörður tryggingar
Vörður hefur það að markmiði að bjóða viðskiptavinum viðeigandi vátryggingarvernd á samkeppnishæfu verði. Félagið leggur áherslu á einföld og þægileg vátryggingaviðskipti og persónulega þjónustu.
Vörður hefur á að skipa þjónustulipru og vel upplýstu starfsfólki sem vinnur í fjölbreyttu og hvetjandi starfsumhverfi. Lögð er áhersla á traust og áreiðanleika í samskiptum.
Lykillinn að farsælum rekstri Varðar er fólkið sem þar starfar. Við leggjum áherslu á starfsánægju, jafnrétti, gott starfsumhverfi, markvissa fræðslu og þjálfun starfsfólks og skemmtilegan vinnustað þar sem hver einstaklingur hefur áhrif og skiptir máli.

Liðsauki í fasteigna- og munatjón
Við leitum að drífandi og skemmtilegum einstaklingi til að ganga til liðs við öflugt teymi okkar á tjónasviði. Sem aðili í teyminu munt þú gegna lykilhlutverki í að aðstoða viðskiptavini okkar sem hafa orðið fyrir fasteignatjónum.
Hjá Verði starfar öflugur hópur fólks með breiðan bakgrunn og þekkingu sem hefur það meginmarkmið að mæta þörfum viðskiptavina og þjónusta þá á framúrskarandi hátt.
Starfið býður upp á sveigjanleika í staðsetningu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þjónusta viðskiptavini Varðar sem lenda í fasteignatjónum
- Tjónamat og ákvörðun bótaskyldu
- Kostnaðarmat og uppgjör tjóna
- Samskipti við hagsmunaaðila í tengslum við vinnslu tjóna
- Önnur tilfallandi verkefni s.s. þátttaka í ýmsum umbótaverkefnum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Framúrskarandi þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Skipulögð vinnubrögð og geta til að vinna sjálfstætt og undir álagi
- Jákvætt hugarfar og vilji til að vera hluti af samhentu teymi
- Reynsla af störfum í þjónustu og störfum innan trygginga er kostur
- Gott vald á rituðu máli, bæði ensku og íslensku
- Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi
Fríðindi í starfi
- Við bjóðum upp á frábæra vinnuaðstöðu í höfuðstöðvum okkar í Borgartúni. Þar má finna mötuneyti í heimsklassa, líkamsræktarsal í húsinu, öflugt starfsmannafélag og skemmtilegan starfsanda.
Auglýsing birt8. september 2026
Umsóknarfrestur20. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Gleráreyrar 1, 600 Akureyri
Borgartún 19, 105 Reykjavík
Aðalgata 64
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Áhafnavakt/Daily Crew Operations
Icelandair

Móttöku- og skrifstofustarf
Hagvangur

Fjármálasérfræðingur
BYKO

Schengen, fjármál og styrkir – er þetta starf fyrir þig?
Dómsmálaráðuneytið

Tvær stöður þjónustufulltrúa við embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Bókari,launafulltrúi
Vörukaup ehf

Skrifstofustjóri
Lyfjafræðingafélag Íslands

Öflug manneskja í skrifstofuvinnu
Netkerfi og tölvur ehf.

Þjónusturáðgjafi
Teya Iceland

Verkefnastjóri NASF á Íslandi
NASF á Íslandi

Frábært skrifstofustarf í boði -Skrifstofa stéttarfélaganna-
Framsýn,stéttarfélag

Operations Manager
BusTravel Iceland ehf.