
Eimskip
Hlutverk Eimskips er að veita áreiðanlegar heildarlausnir í flutningum á sjálfbæran hátt með árangur viðskiptavina að leiðarljósi. Við höfum verið traustur samstarfsaðili í alþjóðlegum flutningum frá árinu 1914 og rekum 56 skrifstofur í 20 löndum með um 1.700 starfsmönnum. Við tryggjum viðskiptavinum okkar áreiðanlegar heildarlausnir í flutningum meðal annars með áætlunarsiglingum og rekstri gáma- og frystiskipa í Norður-Atlantshafi, hafnarþjónustu, landflutningum, vöruhúsa- og frystigeymsluþjónustu og alþjóðlegu skrifstofuneti í flutningsmiðlun.
Hjá Eimskip er lögð sérstök áhersla á að skapa jákvæða menningu með sterkri liðsheild, tækifærum til þróunar, hvatningu til að sýna frumkvæði, opnum skoðanaskiptum og góðri miðlun upplýsinga.

Fulltrúi í þjónustudeild Eimskips
Eimskip leitar að öflugum fulltrúa til framtíðarstarfa í þjónustudeild félagsins. Viðkomandi verður hluti af samhentu teymi sem leggur áherslu á gott samstarf, fagleg vinnubrögð og framúrskarandi þjónustu.
Starfið er fjölbreytt og veitir góða innsýn í alþjóðlega flutningsstarfsemi. Við leitum að jákvæðum og sveigjanlegum einstaklingi sem sýnir frumkvæði, vinnur vel með öðrum og kann að meta líflegt vinnuumhverfi.
Í anda mannauðsstefnu Eimskips eru öll kyn hvött til að sækja um.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þjónusta og ráðgjöf til viðskiptavina vegna útflutnings
- Samskipti við erlendar skrifstofur
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Þekking og/eða reynsla af verkefnum tengdum flutningum eða sjávarútvegi er kostur
- Framúrskarandi samskiptahæfni og rík þjónustulund
- Skipulögð og nákvæm vinnubrögð
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Góð almenn tölvukunnátta
Fríðindi í starfi
- Öflugt starfsmannafélag sem rekur m.a. orlofshús víðs vegar um landið
- Heilsu- og hamingjupakka fyrir starfsfólk sem inniheldur m.a. heilsuræktarstyrk, sálfræðiþjónustustyrk, samgöngustyrk og fleira
- Gott mötuneyti með fjölbreyttu úrvali
Auglýsing birt7. september 2026
Umsóknarfrestur15. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Sundabakki 2, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Áhafnavakt/Daily Crew Operations
Icelandair

A&R fulltrúi / Verkefnastjóri tónlistarútgáfu og markaðsmála
Vetur Music

Þjónusturáðgjafi Kia, Honda og Xpeng
Bílaumboðið Askja

Sölu- og þjónusturáðgjafi í Reykjanesbæ
VÍS

Sölu- og þjónusturáðgjafi á Akranesi
VÍS

Tæknifólk í Framlínuþjónustu
OK

Sérfræðingur í hleðslulausnum
HS Orka

Bókavörður á Djúpavogi
Bókasafn Múlaþings

Móttöku- og skrifstofustarf
Hagvangur

Sölumaður í vettvangssölu
Nói Síríus

Tæknilegur sölu- og þjónustufulltrúi ProLan
ProLan ehf.

Fjármálasérfræðingur
BYKO