
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Velferðasvið ber ábyrgð á áætlanagerð, samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði velferðarþjónustu, eftirliti í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri og þróun velferðarþjónustu og nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga um framkvæmd þjónustunnar. Velferðarsvið býr Reykjavíkurborg ennfremur undir að taka við nýjum velferðarverkefnum frá ríki svo sem í málefnum fatlaðra, öldrunarþjónustu og heilsugæslu.
Velferðarsvið ber ábyrgð á framkvæmd þjónustu á sviði velferðarmála, þar með talinni félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa og barnavernd. Velferðarsvið ber ábyrgð á rekstri þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar og starfseininga sem undir þær heyra. Velferðarsvið vinnur með velferðarráði og barnaverndarnefnd og sinnir málefnum þeirra. Þjónustumiðstöðvar vinna með hverfaráðum í hverfum borgarinnar.
Velferðarsvið sér einnig um rekstur miðlægrar velferðarþjónustu þvert á borgina, átaksverkefna vegna endurhæfingar fólks, heildstæðu forvarnastarfi í Reykjavík, inntöku í húsnæðis- og búsetuúrræði, rekstur hjúkrunarheimila, rekstur framleiðslueldhúss og rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík samkvæmt samningi við ríkið þar um.

Þjónustufulltrúi í Heimaþjónustu Reykjavíkur
Heimaþjónusta Reykjavíkur Norðvestur leitar að jákvæðum og skipulögðum aðila með mikla þjónustulund í starf þjónustufulltrúa. Um er að ræða tímabundið starf í 100% starfshlutfalli á dagvinnutíma, með möguleika á áframhaldandi ráðningu.
Þjónustufulltrúi ber ábyrgð á símsvörun í deild sameinaðrar heimaþjónustu og veitir almennar upplýsingar um starfsemina. Starfið felur í sér samskipti við notendur þjónustunnar, aðstandendur og starfsfólk ásamt skipulagningu og eftirfylgni verkefna.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Afgreiðsla erinda, símsvörun og móttaka beiðna
- Leiðbeiningar og aðstoð við einstaklinga vegna heimaþjónustu
- Skjalavinnsla og frágangur gagna
- Umsjón með bifreiðum heimaþjónustu skv. reglum sem í gildi eru
- Umsjón með innkaupum vegna skrifstofuhalds og reksturs
- Virk þátttaka í þróun þjónustu
- Önnur þau störf sem starfsmanni kunna að verða falin af yfirmanni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stúdentspróf
- Íslenskukunnátta C1 (samkvæmt samevrópska tungumálaramma)
- Reynsla af þjónustu- og/eða skrifstofustörfum
- Hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
- Framtakssemi, sjálfstæði og metnaður í starfi
- Tölvukunnátta og geta til að tileinka sér ný kerfi
- Skipulögð vinnubrögð
- Starfsmaður þarf að geta unnið undir álagi.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
- Ökuréttindi
- Þekking og reynsla af velferðarþjónustu er æskileg
- Enskukunnátta eða önnur tungumálakunnátta er kostur
Fríðindi í starfi
- 36 stunda vinnuvika
- Heilsustyrkur
- Sundkort
- Menningarkort
- Samgöngustyrkur
Auglýsing birt31. ágúst 2026
Umsóknarfrestur14. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Lágmúli 4, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Þjónustufulltrúi óskast hjá Ormsson Akureyri
Ormsson ehf

Starfsmaður í þjónustuver hjá Umbru- þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins
Umbra - þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins

Bellperson / Valet
The Reykjavik EDITION

Front Desk Agent
Lava Car Rental

Þjónustufulltrúi í þjónustuveri
Kópavogsbær

Join Our Fantastic Team at Perlan!
Perlan

Þjónustufulltrúi í Þjónustuver BAUHAUS - Fullt starf
BAUHAUS slhf.

Þjónusturáðgjafi
Veitur

Þjónustufulltrúi - Álfabakki
Bílanaust

Þjónustufulltrúi í þjónustuveri
Eignarekstur ehf

Þjónusturáðgjafi
Reykjavíkurborg

Fulltrúi á kjarasviði
Verkfræðingafélag Íslands