Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg

Þjónusturáðgjafi

Reykjavíkurborg leitar eftir jákvæðum einstaklingi með ríka þjónustulund til þess að aðstoða borgarbúa og starfsfólk Reykjavíkurborgar við margvísleg málefni. Þjónusturáðgjafi er andlit Reykjavíkurborgar út á við og hagar vinnu sinni í samræmi við þjónustustefnu Reykjavíkurborgar.

Í þínu starfi sem þjónusturáðgjafi munt þú veita íbúum upplýsingar um þjónustu borgarinnar og kemur umsóknum, ábendingum og fyrirspurnum í réttan farveg. Þú munt nýta til þess fjölbreyttar samskiptaleiðir en þá helst í gegnum síma, netspjall, beiðnakerfi og afgreiðslu í Höfðatorgi og Ráðhúsi. Framlínan er hluti af þjónustu- og nýsköpunarsviði Reykjavíkurborgar og við leggjum mikla áherslu á lausnamiðaða hugsun og notendamiðaða nálgun við úrlausn verkefna. Um er að ræða 100% starf tímabundið í eitt ár með möguleika á framlengingu.

Helstu verkefni og ábyrgð

Sem þjónusturáðgjafi munt þú...

  • Veita ráðgjöf um þjónustu borgarinnar til viðskiptavina og starfsfólks í gegnum síma, netspjall, beiðnakerfi, tölvupóst og í afgreiðslu
  • Sinna móttöku, afgreiðslu og aðgangsstýringu fyrir gesti og starfsfólk Höfðatorgs og Ráðhúss
  • Aðstoða við rafrænar umsóknir
  • Úrvinnsla ábendinga

Sem þjónusturáðgjafi munt þú einnig vinna þvert á öll svið Reykjavíkurborgar og hafa mikil og góð samskipti við starfsfólk, íbúa og aðra hagsmunaaðila borgarinnar.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf eða sambærileg menntun
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi kostur
  • Reynsla af framlínu og/eða þjónustustörfum er æskileg
  • Reynsla og áhugi á teymisvinnu
  • Rík þjónustulund og jákvæðni
  • Hæfni og áhugi á samskiptum
  • Frumkvæði og lausnamiðuð hugsun
  • Geta til að vinna undir álagi
  • Íslenska B2 skv. samevrópska tungumálarammanum er skilyrði
  • Gott vald á ensku í töluðu og rituðu máli
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Jákvætt viðhorf til jafnréttis og fjölbreytileika.
Auglýsing birt21. ágúst 2026
Umsóknarfrestur4. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar