Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Heilsugæsluritari - Heilsugæslan Seltjarnarnes og Vesturbær

Heilsugæslan Seltjarnarnes leitar að jákvæðum og drífandi heilsugæsluritara til að koma til liðs við sig. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt í starfsumhverfi sem er í stöðugri þróun. Um er að ræða 100% tímabundið starf til eins árs og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.

Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ er fjölskylduvænn vinnustaður og á stöðinni er frábær starfsandi og góð samvinna á milli fagstétta. Okkur er umhugað um starfsfólkið okkar og leggjum mikla áherslu á vellíðan í starfi.

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins).

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ritar sjúkraskýrslur, tilvísanir og vottorð í sjúkraskrárkerfi
  • Flokkun á pósti og rafrænum sendingum ásamt skönnun rannsóknarniðurstaðna, læknabréfa, frágangi gagna o.fl.
  • Umsjón með tímafjölda/dagskrá í móttöku
  • Aðstoðar við móttöku nýrra starfsmanna
  • Almenn upplýsingagjöf um starfsemi stöðvarinnar
  • Símsvörun, bókanir og móttaka skjólstæðinga
  • Meðhöndlun heilbrigðis- og persónuupplýsinga
  • Aðstoðar móttökuritara í móttöku
  • Ýmis önnur tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Heilbrigðisgagnafræði, nám í heilbrigðisritun eða nám sem nýtist í starfi
  • Reynsla af ritarastarfi skilyrði
  • Reynsla af Sögukerfi æskileg
  • Reynsla af Heilsugátt kostur
  • Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum er nauðsynleg
  • Góð almenn tölvukunnátta skilyrði
  • Þekking á upplýsinga- og skjalastjórnun
  • Nákvæm og skipulögð vinnubrögð
  • Góð almenn enskukunnáttu æskileg
  • Íslenskukunnátta skilyrði
Auglýsing birt20. ágúst 2026
Umsóknarfrestur31. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Suðurströnd 12, 170 Seltjarnarnes
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar