ELKO
ELKO
ELKO

Tækniþjónusta ELKO Akureyri

Við leitum að einstaklingi í starf tækniþjónustu ELKO á Akureyri.

Viðkomandi þarf að geta sýnt frumkvæði, tekist á við krefjandi verkefni og hugsað í lausnum. Starfið hentar fólki með mikinn áhuga á tækni, þjónustu og samskiptum.

Hlutverk og ábyrgð

Starfið felur í sér uppsetningu, bilanagreiningar, ástandsskoðanir, almenn afgreiðslu- og þjónustustörf við tækniþjónustu ELKO á Akureyri.

Hæfniskröfur:

  • Góð almenn tölvu- og tæknikunnátta æskileg
  • Kunnátta á uppsetningu og bilanagreiningu á fartölvum, spjaldtölvum og farsímum kostur
  • Góð samskiptahæfni
  • Sé hugmyndaríkur, kraftmikill einstaklingur sem getur unnið sjálfstætt
  • Sýni frumkvæði í starfi og geti tekist á við krefjandi verkefni með bros á vör
  • Hafi hreint sakavottorð
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
  • 20 ára og eldri

ELKO leggur mikið upp úr góðum starfsanda. Tekið er vel á móti nýju starfsfólki þar sem það fær tilskylda þjálfun til þess að geta sinnt krefjandi og skemmtilegum verkefnum sem koma upp í daglegu starfi og þjónustu við viðskiptavini.

Fríðindi í starfi

  • Styrkur til heilsueflingar
  • Afsláttarkjör hjá ELKO, Krónunni, Lyfju og N1
  • Aðgangur að velferðapakka ELKO
  • Aðgangur að fræðslupakka ELKO og Akademias

Frekari upplýsingar veitir Haukur Már Hergeirsson, verslunarstjóri ([email protected])

Umsóknarfrestur er til og með 30.ágúst.

Auglýsing birt18. ágúst 2026
Umsóknarfrestur30. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Tryggvabraut 18-20 18R, 600 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar