
Eimskip
Hlutverk Eimskips er að veita áreiðanlegar heildarlausnir í flutningum á sjálfbæran hátt með árangur viðskiptavina að leiðarljósi. Við höfum verið traustur samstarfsaðili í alþjóðlegum flutningum frá árinu 1914 og rekum 56 skrifstofur í 20 löndum með um 1.700 starfsmönnum. Við tryggjum viðskiptavinum okkar áreiðanlegar heildarlausnir í flutningum meðal annars með áætlunarsiglingum og rekstri gáma- og frystiskipa í Norður-Atlantshafi, hafnarþjónustu, landflutningum, vöruhúsa- og frystigeymsluþjónustu og alþjóðlegu skrifstofuneti í flutningsmiðlun.
Hjá Eimskip er lögð sérstök áhersla á að skapa jákvæða menningu með sterkri liðsheild, tækifærum til þróunar, hvatningu til að sýna frumkvæði, opnum skoðanaskiptum og góðri miðlun upplýsinga.

Meiraprófsbílstjóri á dag- og kvöldvöktum
Eimskip innanlands leitar að þjónustuliprum og ábyrgum meiraprófsbílstjóra með aukin ökuréttindi. Um er að ræða framtíðarstarf í vaktavinnu þar sem unnið er aðra vikuna frá kl. 08:00–16:00 og hina vikuna frá kl. 16:00–00:00. Á dagvöktum felst starfið í gámaakstri á höfuðborgarsvæðinu en á kvöldvöktum í akstri á landsbyggðinni.
Starfið tilheyrir Innanlandssviði Eimskips, en á sviðinu starfa um 400 starfsmenn í fjölbreyttum störfum á 18 starfsstöðvum víðs vegar um landið. Við bjóðum upp á fjölbreytt og krefjandi verkefni í fyrsta flokks vinnuaðstöðu þar sem fagmennska og öryggi eru í forgrunni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Akstur flutningabíla, lestun og losun
- Jákvæð samskipti og framúrskarandi þjónusta til viðskiptavina
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Meirapróf CE er skilyrði
- Réttindi til aksturs í atvinnuskyni er skilyrði
- Lyftarapróf er kostur
- ADR réttindi er kostur
- Góð íslensku og/eða ensku kunnátta
- Geta til að vinna undir álagi
- Framúrskarandi þjónustulund og jákvæðni
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Stundvísi, áreiðanleiki og góð líkamleg færni
Fríðindi í starfi
-
Aðgangur að öflugu starfsmannafélagi sem m.a. rekur frábær orlofshús um allt land.
- Heilsu- og hamingjupakki sem inniheldur samgöngustyrk og styrki fyrir líkamsrækt, sálfræðiþjónustu og fleira.
- Nýjan og vel útbúin flutningabíl
Auglýsing birt3. september 2026
Umsóknarfrestur17. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Klettagarðar 15, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniMeirapróf CMeirapróf CESamviskusemiÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Meiraprófbílstjóri óskast framtíðarstarf
Jarðtækni

Bílstjóri á Bílaflutningabíl
Go Leiga

Reykjavík: Meiraprófsbílstjóri á dælubíl - Stífludeild
Íslenska gámafélagið ehf.

Meiraprófsbílstjóri með reynslu / CE driver with experience - Einingaverksmiðjan
Einingaverksmiðjan

Bílstjóri með meirapróf óskast í dagdvöl Sunnuhlíðar
Sunnuhlíð

Akureyri - Olíubílstjóri
Skeljungur ehf

Akstur & standsetningar LEAPMOTOR/JEEP/RAM/FIAT umboðið
ÍSBAND (Íslensk-Bandaríska ehf)

Bílstjóri og tiltekt - driver
Bakarameistarinn

Meiraprófsbílstjóri á Selfossi
Samskip

Vöruhús / lager
Icetransport

Travel Consultant & Guide for Chinese-speaking Market
Forest Cat Travel

Bílstjóri óskast á sendibifreið.
Glymur flutningaþjónusta ehf.