
Bílanaust
Stefna Bílanausts er að vera leiðandi fyrirtæki á innanlandsmarkaði á sviði varahluta og bílatengdra vara. Fyrirtækið byggir á traustum grunni sem rekja má aftur til ársins 1962.
Bílanaust rekur sex verslanir. Stærsta verslunin er á Bíldshöfða 12 í Reykjavík en einnig eru verslanir í Hafnarfirði, Keflavík, á Selfossi og Akureyri.
Skrifstofur eru til húsa á Bæjarhrauni 12, 220 Hafnarfjörður.
Jafnframt rekur fyrirtækið öfluga söludeild og fyrirtækjaþjónustu með reynslumiklum sölumönnum og vörumerkjastjórum.
Bílanaust kappkostar að bjóða vörur frá leiðandi birgjum á samkeppnishæfu verði.
Sem dæmi um þekkt vörumerki sem Bílanaust dreifir eru Bosch, Varta, Nipparts, ABS, Hella, NGK, MAPCO, Denso, FRAM, Osram, Turtle Wax og Mothers.

Ráðgjafi í verslun - Reykjanesbæ
Vegna aukinna verkefna leitum við að starfsmanni í verslun okkar á Hafnargötu 52 (Reykjanesbæ) í 100% starf. Starfið felur í sér að að veita viðskiptavinum Bílanausts leiðsögn og framúrskarandi þjónustu.
Afgreiðslutími er frá 08:00 til 18:00 alla virka daga. Unnið er eftir vaktafyrirkomulagi.
Hæfniskröfur:
-20 ára eða eldri.
-Reynsla af afgreiðslu á varahlutum og eða reynsla í bifvélavirkjun kostur.
-Góð tök á íslensku máli, bæði skriflega og munnlega.
-Áhugi og vilji til að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu.
-Góð færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund.
-Skipulagsfærni.
-Hreint sakavottorð.
Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um starfið.
Bílanaust - Fyrir fólk á ferðinni
Helstu verkefni og ábyrgð
- Reynsla af afgreiðslu á varahlutum og eða reynsla í bifvélavirkjun kostur.
- Góð tök á íslensku máli, bæði skriflega og munnlega.
- Áhugi og vilji til að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu.
- Góð færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund.
- Skipulagsfærni.
Auglýsing birt7. september 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Hafnargata 52, 230 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
SkipulagÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Þjónustufulltrúi (tímabundið starf)
Dropp

Sölufulltrúi 66° Norður á Akureyri
66°North

Hlutastarf í MAC snyrtivöru
Hagkaup

Fulltrúi í þjónustudeild Eimskips
Eimskip

Búllan á Reykjavíkurvegi hafnarfirði leitar að starfsfólki í kvöld og helgarvinnu
Hamborgarabúllan

Sölufulltrúi - Lagnaverslun BYKO
Byko

Afgreiðsla / barþjónn - Funky Bhangra Smáralind
Funky Bhangra

Sölufulltrúi með meirapróf
Emmessís ehf.

Sérfræðingur á sölusviði
Hreint ehf

Sales & Travel Agent
Travelshift

Sala varahluta - Akureyri
Brimborg

Starf í móttöku
Rauði krossinn á Íslandi