

Sölufulltrúi - Lagnaverslun BYKO
Við leitum að öflugum einstaklingi til að sinna starfi sölufulltrúa í lagnaverslun okkar á Breiddar svæðinu.
Starfið felur í sér ráðgjöf, tilboðsgerð og sölu á lagnaefni og ofnum ásamt eftirfylgni með pöntun og afhendingu til viðskiptavina.
Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.
Vinnutími er alla virka daga frá kl. 8:00-17:00 og einn laugardagur (frá kl. 10:00-14:00) í mánuði.
Við leitum af einstaklingi með:
- Metnaði fyrir að veita framúrskarandi sölu- og þjónustuupplifun til viðskiptavina
- Áhuga á verslun og þjónustu
- Þekkingu á lagnaefni - kostur
- Góða tölvukunnáttu
- Samviskusemi, skipulögð og öguð vinnubrögð
- Íslensku- og enskukunnáttu - skilyrði
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Sala, þjónusta og ráðgjöf til viðskiptavina ásamt tilboðsgerð
- Eftirfylgni með tilboðum og pöntunum frá upphafi til afhendingar
- Viðhalda góðu sambandi við viðskiptavini
- Önnur tilfallandi störf
Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.
BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.
Íslenska
Enska










