
Rauði krossinn á Íslandi
Rauði krossinn á Íslandi er hluti af stærstu mannúðar- og hjálparsamtökum heims. Allt starf Rauða krossins miðar að því að bregðast við og aðstoða þar sem neyðin er mest.
Landsfélög Rauða krossins og Rauða hálfmánans veita aðstoð og dreifa hjálpargögnum í hverju landi fyrir sig. Þannig tryggir Rauðakrosshreyfingin að hjálpin komist beint til skila til þeirra hópa sem mest þurfa á aðstoð að halda. Landsfélög Rauða krossins og Rauða hálfmánans eru 190 en einungis eitt Rauða kross félag má starfa í hverju landi. Saman mynda Alþjóðaráð Rauða krossins, Alþjóðasambandið og landsfélögin, alþjóðahreyfingu Rauða krossins og Rauða hálfmánans.

Sérfræðingur í neyðarvörnum
Rauði krossinn leitar að öflugum og sveigjanlegum einstaklingi til að sinna starfi sérfræðings í neyðarvörnum.
Viðkomandi þarf að geta sýnt frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
Kostur er ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Gerð viðbragðsáætlana
- Ber ábyrgð á evrópskum samstarfsverkefnum tengdum neyðarvörnum
- Skýrslugerð og gæðamál
- Kemur að samskiptum við almannavarnir og sjálfboðaliða
- Kemur að samræmingu og þróun neyðarviðbragða á landsvísu
- Sinnir útköllum og bakvöktum eftir þörfum ásamt öðru starfsfólki teymisins
- Kemur að æfingum í neyðarvörnum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Þekking og/eða reynsla af almannavörnum er kostur
- Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
- Reynsla af starfi með Rauða krossinum er kostur
- Mjög góð rit- og talfærni á íslensku og ensku nauðsynleg
- Þekking og/eða reynsla af verkefnastjórnun og skýrslugerð er kostur
- Mjög góð færni í mannlegum samskiptum og menningarlæsi
- Þekking eða reynsla af notkun helstu tölvukerfa
Fríðindi í starfi
- Greiddur farsímareikningur
- Heyrnatólastyrkur
- Farsímastyrkur
- Íþróttarstyrkur
- Samgöngustyrkur
Auglýsing birt8. september 2026
Umsóknarfrestur24. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Efstaleiti 9, 103 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiHreint sakavottorðÖkuréttindiSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSveigjanleikiVinna undir álagi
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Þjónustufulltrúi
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Verkefnastjóri í fasteignum og viðhaldi
Landsnet hf.

Desk Officer
Konvin Car Rental

Verkefnastjóri viðskiptakerfa
Advania

Origo leitar að reynsluboltum í Business Central
Origo ehf.

Verkefnastjóri viðburða
Harpa tónlistar- og ráðstefnuhús

Verkefnastjóri – stefna og fjárfestingar
Landsnet hf.

Verkefnastjóri á Heimili fyrir börn
Velferðarsvið Mosfellsbæjar - Búsetukjarnar

Sérfræðingur í rannsóknaþjónustu
Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands

Bókari og skrifstofufulltrúi
Akraborg ehf.

Hvernig hafa húsin okkar það?
FSRE

Verkefnastjóri í Mannauðslausnum
Advania