
Greinandi - Eignarhaldssvið
Alfa Framtak er rekstraraðili sérhæfðra sjóða. Við fjárfestum í fjölbreyttum fyrirtækjum, styðjum við vöxt og leiðum umbreytingar með virku eignarhaldi, sem felur í sér að við vinnum náið með stjórnendum, athafnafólki og fyrirtækjaeigendum sem vilja ná því besta út úr sínum rekstri. Markmið okkar er að hámarka verðmæti fjárfestinga og skila fyrirtækjum frá okkur í betra ástandi við sölu og þannig skilja eftir okkur jákvæð fótspor í íslensku viðskiptalífi.
Eignarhaldssvið leiðir stefnumótun í upphafi fjárfestingar og hefur umsjón með árangri eignasafns yfir eignarhaldstímann. Við leitum nú að liðsauka við eignarhaldssviðið í formi greinanda.
Meðal þess sem viðkomandi mun vinna að er gagnaöflun og ítarlegar greiningar á framgangi verkefna og fjárfestinga. Teymið er í forsvari fyrir Alfa Framtak í öllum samskiptum og rekstri félaga í eignasafni og viðkomandi þarf því að geta unnið þétt með fjölbreyttum hópi einstaklinga úr fjölda atvinnugreina.
Einlægur áhugi á viðskiptum og rekstri fyrirtækja er forsenda. Færni á sviði fjárhagslegra greininga og gerð kynninga eru mikilvægir eiginleikar. Tæknilegur skilningur og hagnýting gervigreindar er kostur.
Viðkomandi þarf að taka frumkvæði í sínum störfum, vera tilbúin(n) að leggja mikið á sig við nákvæmni upplýsinga og hafa getu til að miðla niðurstöðum í bæði ræðu og riti.
Hjá Alfa Framtak starfar samheldinn hópur starfsmanna sem kappkostar að nýta rödd og þekkingu allra við borðið. Við leitum því að aðila sem er í senn með metnað og auðmýkt til þess að starfa með fjölbreyttum hópi starfsfólks, fjárfesta og stjórnenda.
Um er að ræða tímabundið starf fram á haust 2027.
Umsóknarfrestur er til og með 16. september næstkomandi.
Óskað er eftir ferilskrá og kynningarbréfi (í einu skjali) sem útlistar hæfni og getu til þess að lenda hlaupandi í hröðu umhverfi
Nánari upplýsingar veitir:
Kristján Pétur Sæmundsson hjá Brú Talent, [email protected]
Íslenska










