
Elkem Ísland ehf
Elkem á Íslandi er hluti af sterkri alþjóðlegri heild, Elkem ASA, sem er einn af helstu framleiðendum heims á kísilafurðum.
Hjá Elkem Ísland starfa að jafnaði um 170 manns og eru 85% starfsfólksins búsett í nærliggjandi sveitarfélögum. Elkem Ísland er traustur og eftirsóknarverður vinnustaður. Áherslur fyrirtækisins er að hafa fjölbreytileikann að leiðarljósi. Hjá Elkem starfa einstaklingar með mismunandi hæfileika, áherslur og bakgrunn og hefur það skilað Elkem góðum árangri ásamt því að styðja við gildi fyrirtækisins um stöðugar framfarir.
Elkem Ísland leggur mikla áherslu á aðbúnað starfsfólks og öryggi þess ásamt sterkri fyrirtækjamenningu, hollustu, þjálfun og fræðslu. Stór hluti starfsfólks hefur unnið hjá fyrirtækinu í yfir 20 ár og hafa nokkrir náð 40 ára starfsaldri, en þeir voru við störf þegar verksmiðjan hóf rekstur.
Fyrirtækið framleiðir kísilmálm og kísilryk úr málmgrýti og kolefni. Við framleiðsluna er notuð orka sem framleidd er með vatnsafli. Dæmi um vörur sem innihalda kísilmálm frá Elkem Ísland eru m.a. rafmagnsstál fyrir spenna og rafmótora sem notaðir eru í rafmagnsbíla, hástyrktarstál fyrir vindmyllur, ryðfrítt stál fyrir farartæki, hnífapör, kúlur, legur, byggingarstál.

Controller á fjármálasviði
Elkem Ísland óskar eftir að ráða öflugan og metnaðarfullan einstakling í starf Controller á fjármálasviði fyrirtækisins. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf í lifandi og alþjóðlegu starfsumhverfi þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, umbætur og samvinnu. Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra fjármálasviðs.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með reikningshaldi fyrirtækisins
- Ábyrgð á mánaðar, ársuppgjöri og samstæðureikningsskilum í samstarfi við framkvæmdastjóra fjármálasviðs.
- Undirbúningur lokafærslna og fjárhagsáætlana.
- Eftirfylgni með kostnaði og greining
- Þáttaka í gerð fjárhagsáætlana (budget)
- Þáttaka í umbótaverkefnum
- Greiningarvinna og stuðningur við aðrar deildir fyrirtækisins
- Umsjón með skjölun vegna milliverðlagningar
- Leiðandi hlutverk í stafrænni umbreytingu
- Umsjón með skilum á gögnum til endurskoðenda og opinberra aðila
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði viðskiptafræða.
- Meistaranám á sviði reikningshalds æskileg.
- Reynsla af sambærilegu starfi
- Þekking og skilningur á helstu reikningsskilareglum
- Talnagleggni og greiningarhæfni
- Nákvæmni og ábyrgð
- Mjög góð Excel kunnátta
- Reynsla af Power BI eða sambærilegum kerfum er kostur
- Geta til að vinna undir álagi og tileinka sér nýja þekkingu
- Góð samskiptahæfni
Auglýsing birt8. september 2026
Umsóknarfrestur22. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
grundartangi
Starfstegund
Hæfni
FjárhagsáætlanagerðFrumkvæðiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagUppgjör
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (9)

Orkubú Vestfjarða - Sérfræðingur á fjármálasviði
Orkubú Vestfjarða ohf

Sérfræðingur í fjárreiðudeild
Hafnarfjarðarbær

Vanur bókari óskast
Tölvutek

Bókhald / Fjármál
Mögnum

Ráðgjafi í innri endurskoðun og upplýsingaöryggi
KPMG á Íslandi

Ráðgjafi sveitarfélaga
Wise lausnir ehf.

Finance Officer
EFTA Secretariat

Fjármálasérfræðingur
BYKO

Sérfræðingur í fjármálum
50skills