
Sýn
Sýn er leiðandi afl á sviði fjarskipta og fjölmiðlunar á Íslandi. Hjá Sýn sameinum við það besta úr heimi tækni og afþreyingar og breytum hversdagsleikanum í upplifun. Það er betra að vera með Sýn – hvort sem þú ert að horfa, hlusta, vafra eða vinna.
Hjá Sýn leggjum við áherslu á að starfsfólk upplifi vellíðan í vinnu. Það gerum við með því að búa starfsfólki framúrskarandi vinnuaðstöðu, huga að líkamlegri og andlegri heilsu þess og gefa því möguleika á sveigjanleika í vinnu. Við viljum að fólki líði vel í vinnunni, upplifi sig sem hluta af sterkri liðsheild, fái útrás fyrir sköpunarþörf sína og tækifæri til að takast á við verkefni þar sem styrkleikar þeirra fá helst notið sín. Sýn vill þannig stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og góðu sjálfstrausti starfsfólks og að starfsfólk sýni frumkvæði í starfi. Við trúum því að fyrirtækinu gangi best þegar starfsfólkið er upp á sitt BESTA.

Gagnasérfræðingur
Sýn leitar að öflugum gagnasérfræðingi sem vill taka þátt í að byggja upp, þróa og reka gagnalausnir Sýnar á spennandi uppbyggingartímum.
Við leitum að metnaðarfullum sérfræðingi til starfa við gagnavinnslu og greiningar í gagnateymi Sýnar. Viðkomandi mun vinna þvert á einingar innan félagsins og mun taka þátt í spennandi uppbyggingu á nýju gagnaumhverfi með hagnýtingu gervigreindar í forgrunni. Ef þú ert með góða greiningarhæfni, tæknilæsi og lausnamiðaða hugsun þá hvetjum við þig til að sækja um starfið.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þátttaka í þróun á nýju gagnaumhverfi.
- Rekstur á gagnaumhverfi félagsins; gagnakeyrslur, teningar, sjálfvirkt eftirlit o.fl.
- Uppsetning og viðhald á skýrslum, teningum og mælaborðum.
- Sértækar gagnaúttektir og skýrslur.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í verkfræði, stærðfræði, tölvunarfræði eða öðru sem nýtist í starfi.
- Reynsla og áhugi á notkun gervigreindar.
- Þekking á gagnagreiningu, líkanagerð og forritun (t.d. SQL, python).
- Reynsla af Power BI eða öðrum greiningartólum.
- Reynsla af gagnavinnslu í skýjaumhverfi er kostur, svo sem Databricks, Spark eða sambærilegu.
- Sjálfstæð vinnubrögð, áhugi og áreiðanleiki.
- Gott skipulag og hæfni í mannlegum samskiptum.
Fríðindi í starfi
- Frábæra vinnufélaga
- Framúrskarandi vinnuaðstöðu
- Mötuneyti á heimsmælikvarða
- Internet- og farsímaáskrift
- Streymisveitu Sýnar og Viaplay
- Árlegan heilsustyrk
- Símtækjastyrk
- Samgöngustyrk fyrir þá sem nýta sér vistvæna ferðamáta til og frá vinnu
- Öflugt starfsmannafélag og frábæra vinnustaðamenningu
Auglýsing birt2. september 2026
Umsóknarfrestur13. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)


