Sýn
Sýn
Sýn

Viðskiptastjóra lykilviðskiptavina

Vilt þú vera lykilráðgjafi nokkurra af stærstu fyrirtækjum landsins?

Sýn leitar að öflugum viðskiptastjóra til liðs við fyrirtækjasvið félagsins. Viðskiptastjóri lykilviðskiptavina ber heildarábyrgð á viðskiptasambandi við nokkur af stærstu fyrirtækjum landsins og gegnir lykilhlutverki í að byggja upp og þróa viðskipti til framtíðar.

Við leitum að kraftmiklum, framsæknum og þjónustulunduðum einstaklingi sem hefur áhuga á viðskiptum, tækni og því að byggja upp sterk langtímasambönd. Í boði er krefjandi og ábyrgðarmikið framtíðarstarf í samheldnu teymi þar sem sjálfstæð, fagleg og árangursdrifin vinnubrögð skipta miklu máli.

Starfið felst meðal annars í að öðlast góðan skilning á rekstri, þörfum og markmiðum viðskiptavina, greina ný tækifæri og vinna með sérfræðingum Sýnar að lausnum sem skapa raunveruleg verðmæti. Viðskiptastjóri kynnir jafnframt nýjungar í vöruframboði og tryggir framúrskarandi þjónustu og eftirfylgni.

Lögð er rík áhersla á traust langtímasamband, framúrskarandi þjónustu og að styðja við verðmætasköpun viðskiptavina.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Viðskiptastýring og heildarábyrgð á völdum lykilviðskiptavinum
  • Uppbygging og þróun sterkra langtíma viðskiptasambanda
  • Greining á þörfum, tækifærum og framtíðaráformum viðskiptavina
  • Ráðgjöf og þróun lausna í samstarfi við sérfræðinga Sýnar
  • Gerð viðskipta- og vaxtaráætlana fyrir lykilviðskiptavini
  • Samningagerð og eftirfylgni
  • Tryggja framúrskarandi þjónustu og upplifun viðskiptavina
  • Greina ný tækifæri og skapa aukin verðmæti fyrir viðskiptavininn og Sýn
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af viðskiptastýringu, B2B-sölu, ráðgjöf eða sambærilegu starfi æskileg
  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
  • Gott viðskiptavit og hæfni til að greina og þróa viðskiptatækifæri
  • Frumkvæði, metnaður og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð samninga- og samskiptahæfni
  • Markmiðadrifin og árangursmiðuð nálgun
  • Áhugi á tækni og þeim tækifærum sem hún skapar fyrir fyrirtæki

Það sem við höfum upp á að bjóða

  • Krefjandi og spennandi tæknilega vegferð
  • Metnaðarfullt og hæft teymi með skýra tæknilega stefnu
  • Líflegur og skemmtilegur vinnustaður með frábært mötuneyti

Fríðindi í starfi

  • Frábæra vinnufélaga
  • Framúrskarandi vinnuaðstöðu
  • Mötuneyti á heimsmælikvarða
  • Internet- og farsímaáskrift
  • Streymisveitu Sýnar og Viaplay
  • Árlegan heilsustyrk
  • Símtækjastyrk
  • Samgöngustyrk fyrir þá sem nýta sér vistvæna ferðamáta til og frá vinnu
  • Öflugt starfsmannafélag og frábæra vinnustaðamenningu


Hver erum við?

Sýn er leiðandi afl á sviði fjarskipta og fjölmiðlunar á Íslandi. Hjá Sýn sameinum við það besta úr heimi tækni og afþreyingar og breytum hversdagsleikanum í upplifun.
Það er betra að vera með Sýn – hvort sem þú ert að horfa, hlusta, vafra eða vinna.

Hjá Sýn leggjum við áherslu á að starfsfólk upplifi vellíðan í vinnu. Það gerum við með því að búa starfsfólki framúrskarandi vinnuaðstöðu, huga að líkamlegri og andlegri heilsu þess og gefa því möguleika á sveigjanleika í vinnu. Við viljum að fólki líði vel í vinnunni, upplifi sig sem hluta af sterkri liðsheild, fái útrás fyrir sköpunarþörf sína og tækifæri til að takast á við verkefni þar sem styrkleikar þeirra fá helst notið sín. Sýn vill þannig stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og góðu sjálfstrausti starfsfólks og að starfsfólk sýni frumkvæði í starfi. Við trúum því að fyrirtækinu gangi best þegar starfsfólkið er upp á sitt BESTA.

Við hvetjum áhugasöm af öllum kynjum til að sækja um í gegnum ráðningarvefinn okkar. Umsóknarfrestur er til og með 7. september 2026. Umsóknir eru rýndar jafnóðum og þær berast.
Fyrir nánari upplýsingar má senda póst á [email protected]

Auglýsing birt25. ágúst 2026
Umsóknarfrestur7. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.Viðskiptasambönd
Starfsgreinar
Starfsmerkingar