Icelandair
Icelandair
Icelandair

Insights Analyst

Tekjustýringar- og fargjaldadeild Icelandair gegnir lykilhlutverki í að hámarka afkomu af alþjóðlegu leiðarkerfi félagsins. Innan deildarinnar starfar Insights-teymið, sem er greiningar- og viðskiptagreindarteymi (e. Business Intelligence) fyrir allt Commercial svið félagsins. Þrátt fyrir að teymið sé staðsett innan tekjustýringar vinnur það verkefni þvert á allar deildir viðskiptasviðsins – m.a. sölu, markaðsmál, leiðakerfi og þjónustu.

Icelandair leitar nú að sérfræðingi í gagnagreiningum (e. Insights Analyst) til að greina gögn sem varða frammistöðu félagsins og búa til virði fyrir viðskiptasviðið í heild. Viðkomandi kemur til með að nota ýmsar greiningaraðferðir og forritun til að þróa mælaborð, skýrslur og líkön, og tryggja þannig að teymi um allt viðskiptasviðið búi að bestu mögulegu gögnum við ákvarðanatöku. Einnig mun sérfræðingurinn greina markaðsaðstæður sem hafa áhrif á frammistöðu Icelandair og styðja við ákvarðanir sem miða að því að hámarka tekjur og hagnað.

Í tengslum við Flexible Working stefnu Icelandair bjóðum við upp á tækifæri á að vinna í fjarvinnu, frá skrifstofum okkar, eða bæði í bland.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þróun á skýrslum, mælaborðum og greiningum fyrir deildir viðskiptasviðsins
  • Skrifa og fínstilla fyrirspurnir í SQL og vinna með fjölbreytt gagnasöfn og forritunar-/greiningartól
  • Þróun ákvarðanatöku- og forspárlíkana
  • Þróun frammistöðumælikvarða
  • Stýring verkefna tengdum greiningum og gagnalæsi
  • Önnur tengd verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi (t.d. tölvunarfræði, verkfræði, hagfræði, stærðfræði, viðskiptafræði eða sambærilegt)
  • Reynsla af gagnagreiningu, viðskiptagreind (e. Business Intelligence) eða sambærilegum greiningarstörfum í Power BI eða sambærilegum viðskiptagreindarlausnum.
  • Reynsla úr rekstrar-, viðskipta- eða gagnadrifnu umhverfi eða af verkefnastjórnun kostur
  • Reynsla af vinnu með gögn og forrit á borð við SQL, Excel, Python, R eða sambærileg forrit. Þekking á Databricks kostur.
  • Þekking á eða reynsla af notkun gervigreindarlausna við þróun og greiningu, svo sem Claude eða Copilot kostur
  • Reynsla af vinnu með semantic models (merkingarlíkön/gagnalíkön) kostur
  • Sterk greiningarhæfni og hæfni til að leysa úr vandamálum
  • Hæfni til að greina, túlka og miðla upplýsingum og innsýn úr gögnum
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Gott vald á ensku í ræðu og riti
Auglýsing birt28. ágúst 2026
Umsóknarfrestur9. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Flugvellir 1, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.GagnagreiningPathCreated with Sketch.GreiningarfærniPathCreated with Sketch.Power BIPathCreated with Sketch.SQL
Starfsgreinar
Starfsmerkingar