Vistor
Vistor
Vistor

Sérfræðingur í viðskiptaþróun og greiningum

Sérðu tækifæri þar sem aðrir sjá bara gögn?

Vistor leitar að metnaðarfullum og drífandi sérfræðingi í viðskiptaþróun og greiningum sem vill hafa raunveruleg áhrif á þróun fyrirtækisins og lyfjamarkaðarins á Íslandi.

Við leitum að einstaklingi sem er sterkur í greiningum en hugsar lengra, sér tækifærin í gögnunum, finnur bestu lausnirnar og kemur þeim í framkvæmd.

Starfið hentar einstaklingi sem þrífst í hröðu og krefjandi umhverfi, tekur frumkvæði og getur tekið upplýstar ákvarðanir af öryggi. Við viljum manneskju sem er stöðugt að velta fyrir sér: Getum við gert þetta betur, hraðar eða snjallar?

Þú starfar náið með markaðsstjóra og sérfræðingum í viðskiptaþróun og greiningum þar sem gögn, markaðsinnsýn og ný tækni eru nýtt til að finna tækifæri, bæta ákvarðanatöku og þróa lausnir sem skapa virði fyrir Vistor og samfélagið í heild.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Greina markaðinn, þróun, trend og ný viðskiptatækifæri
  • Umbreyta gögnum og upplýsingum í skýra innsýn og tillögur að aðgerðum
  • Finna tækifæri til sjálfvirknivæðingar og stöðugra umbóta á verkferlum
  • Nýta gervigreind og stafrænar lausnir til að einfalda vinnu og styrkja ákvarðanatöku
  • Vinna að áætlanagerð, eftirfylgni og greiningu á árangri
  • Framkvæma kostnaðar-, ábata- og viðskiptagreiningar
  • Vinna að verðútreikningum og umsóknum um greiðsluþátttöku
  • Vinna með og eiga samskipti við birgja, opinbera aðila og samstarfsaðila
  • Taka virkan þátt í þróun nýrra lausna og verkefna þvert á fyrirtækið
Auglýsing birt17. ágúst 2026
Umsóknarfrestur30. ágúst 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hörgatún 2, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.GagnagreiningPathCreated with Sketch.GervigreindPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Power BIPathCreated with Sketch.SjálfvirknivæðingPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Viðskiptagreind
Starfsgreinar
Starfsmerkingar