
Fjármála og efnahagsráðuneytið
Meginhlutverk fjármála- og efnahagsráðuneytis felst í yfirstjórn opinberra fjármála og efnahagsmála. Ráðuneytið fer með málefni fjármálamarkaðarins, ber ábyrgð á bættum stjórnunarháttum og áætlanagerð, hefur með höndum virka stjórn mannauðsmála ríkisins og er leiðandi í umbótum og nýsköpun í rekstri ríkisins.
Ráðherra, fer með yfirstjórn ráðuneytisins og ber ábyrgð á öllum stjórnarframkvæmdum þess.
Ráðuneytisstjóri stýrir ráðuneytinu undir yfirstjórn ráðherra.
Ráðuneytið starfar sem ein heild og skiptist í eftirfarandi; skrifstofa efnahagsmála, skrifstofa fjármálamarkaðar, skrifstofa opinberra fjármála, skrifstofa skattamála, skrifstofa stjórnunar og umbóta, skrifstofa yfirstjórnar og skrifstofu rekstrar og innri þjónustu. Að auki starfar kjara- og mannauðssýsla ríkisins sem hluti af ráðuneytinu og telst hún vera ráðuneytisstofnun í skilningi 17. gr. stjórnarráðslaga.
Ráðuneytisstjóri annast samræmingu á starfsemi skrifstofa og sviða og felur einum starfsmanna hverrar skrifstofu og sviðs staðgöngu fyrir skrifstofustjóra í fjarveru þeirra. Að auki geta verið starfræktir til lengri og skemmri tíma sérstakir verkefnahópar eða -teymi til að vinna að málefnum og verkefnum sem varða verksvið fleiri en einnar skipulagseiningar ráðuneytisins, skv. nánari ákvörðun hverju sinni.

Hagfræðingur á skrifstofu skattamála
Fjármála- og efnahagsráðuneytið leitar að framúrskarandi hagfræðingi til að sinna fjölbreyttum verkefnum á sviði áætlanagerðar, greininga og skattamála.
Skrifstofa skattamála tekur þátt í mótun stefnu í skattamálum og tekjuöflun ríkisins. Meðal verkefna skrifstofunnar er undirbúningur og gerð lagafrumvarpa á sviði skattamála ásamt mati á áhrifum fyrirhugaðra skattbreytinga. Skrifstofan undirbýr setningu heildarmarkmiða um tekjuöflun ríkissjóðs og hins opinbera og hefur umsjón með tekjuáætlun fjárlaga og áætlana auk þess að sinna samtímavöktun á innheimtu og greiningu tekna og þróun einstakra skattstofna. Skrifstofan tekur auk þess þátt í alþjóðlegu samstarfi og annast undirbúning og gerð tvísköttunarsamninga.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þátttaka í stefnumörkun og áætlanagerð er varðar tekjuöflun ríkissjóðs.
- Gagnavinnsla og greining á horfum og þróun til lengri tíma.
- Almenn umfjöllun í ræðu og riti um skattamál og tekjuöflun ríkissjóðs.
- Stuðningur og ráðgjöf vegna skatta- og tekjumála almennt.
- Ýmis nefndarstörf og þátttaka í starfshópum á verkefnasviði skrifstofunnar.
- Samskipti við innlendar og erlendar stofnanir og hagaðila á sviði skattamála.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Meistaragráða á sviði hagfræði er skilyrði.
- Reynsla af áætlanagerð og greiningarvinnu sem nýtist í starfi.
- Góð þekking og reynsla af hagnýtingu og þróun reiknilíkana og gagnasafna.
- Reynsla af notkun hagrannsóknaforrita er kostur.
- Lausnamiðuð hugsun, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Mjög góð samskiptahæfni auk hæfni til að taka þátt í teymisvinnu.
- Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti er skilyrði.
Auglýsing birt19. ágúst 2026
Umsóknarfrestur31. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Reykjavík, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)

