Fjármála og efnahagsráðuneytið
Fjármála og efnahagsráðuneytið
Fjármála og efnahagsráðuneytið

Sérfræðingur í fjármálaráði

Fjármálaráð leitar að metnaðarfullum sérfræðingi með sterka greiningarfærni og brennandi áhuga á efnahagsmálum og opinberum fjármálum.

Fjármálaráð starfar samkvæmt lögum um opinber fjármál og er sjálfstætt í störfum sínum. Ráðinu er ætlað að tryggja að fram fari hlutlægt mat á stefnumörkun í opinberum fjármálum. Hlutverk ráðsins er að leggja mat á hvort fimm ára fjármálastefna og fjármálaáætlun fylgi þeim grunngildum sem lög um opinber fjármál kveða á um. Einnig er ráðinu ætlað að greina og vakta stöðu og horfur um framleiðni og samkeppnishæfni hagkerfisins. Sjá nánar á Stjórnarráðið | Fjármálaráð.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Greiningar og mat á fjármálastefnu og fjármálaáætlun ríkisins.
  • Greiningar á stöðu og horfum í opinberum fjármálum.

  • Greiningar á stöðu og horfum um framleiðni og samkeppnishæfni hagkerfisins.

  • Ritun álita, skýrslna og annars greiningarefnis.

  • Kynningar á stöðu og þróun í ræðu og riti.

  • Samstarf og samskipti við innlendar og erlendar stofnanir, hagaðila á sviði opinberra fjármála og aðila vinnumarkaðarins.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meistarapróf á sviði hagfræði eða tengdum greinum.

  • Góð þekking á efnahagsmálum í þjóðhagslegu samhengi.

  • Góð greiningarfærni sem nýtist í starfi.

  • Góð færni í hagnýtingu gagnavinnsluforrita og tölfræðilegri úrvinnslu til að greina og miðla tölulegum upplýsingum.

  • Gagnrýnin hugsun, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.

  • Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti er skilyrði.

  • Mjög góð samskiptahæfni auk hæfni til að taka þátt í teymisvinnu.

  • Reynsla af opinberri hagstjórn eða þekking á starfsemi ríkisins er kostur.

Auglýsing birt17. júlí 2026
Umsóknarfrestur20. ágúst 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar