Bílabúð Benna
Bílabúð Benna

Sérfræðingur í launavinnslu, innheimtu og greiðslustýringu

Langar þig að vinna í líflegu, öflugu og metnaðarfullu umhverfi þar sem reynsla þín og nákvæmni fá að njóta sín?

Bílabúð Benna ehf., Sixt bílaleiga, Vagneignir ehf. og tengd félög leita að drífandi og sjálfstæðum einstaklingi í fjölbreytt og krefjandi starf á fjármálasviði. Um er að ræða lykilstöðu þar sem víðtæk reynsla af launavinnslu, innheimtu og greiðslustýringu skiptir sköpum.

Hjá Bílabúð Benna og tengdum félögum starfar samhentur og metnaðarfullur hópur. Samstæðan fagnar 51 ára afmæli og teygir anga sína víða – allt frá sölu og þjónustu í bílgreinum og bílaleigurekstri yfir í fjárfestingar og fasteignaumsýslu. Hjá okkur er lögð rík áhersla á fagmennsku, traustan vinnustaðaranda og framúrskarandi þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð

●     Launastýring: Umsjón með og framkvæmd launavinnslu frá A-Ö, skil á opinberum gjöldum, lífeyrissjóðum og afleiddum kjarasamningsbundnum liðum.

●     Innheimta & Krafnauppgjör: Eftirfylgni viðskiptakrafna, samskipti við innheimtufyrirtæki og uppgjör samninga við viðskiptavini.

●     Greiðslustýring: Umsjón með daglegu greiðslum, banka- og sjóðsafstemmingum ásamt samskiptum við bankastofnanir.

●     Þjónusta og samskipti: Svörun fyrirspurna starfsfólks og viðskiptavina er varða laun, reikninga og uppgjör.

●     Önnur tilfallandi verkefni á fjármálasviði í samstarfi við teymið.

Menntunar- og hæfniskröfur

●     Víðtæk reynsla af sambærilegum störfum á sviði launavinnslu, innheimtu eða greiðslustýringar (skilyrði).

●     Góð þekking á launakerfum og bókhaldsforritum. Þekking á H3 er kostur.

●     Mikil nákvæmni, kerfisbundin vinnubrögð og rík ábyrgðartilfinning.

●     Góð samskipta- og þjónustulund ásamt hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymi.

Góð almenn tölvukunnátta (sérstaklega í Excel og upplýsingakerfum).

Fríðindi í starfi

●     Fjölbreytt og krefjandi verkefni hjá traustri og vel gróni samstæðu.

●     Góðan og stuðningsríkan vinnustaðaranda.

●     Góða starfsaðstöðu og tækifæri til að þróast í starfi.

Auglýsing birt9. september 2026
Umsóknarfrestur20. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Krókháls 9, 113 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfstemmingPathCreated with Sketch.GjaldkeriPathCreated with Sketch.H-LaunPathCreated with Sketch.LaunavinnslaPathCreated with Sketch.Microsoft Dynamics 365 Business CentralPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Opus AltPathCreated with Sketch.ReikningagerðPathCreated with Sketch.Uppgjör
Starfsgreinar
Starfsmerkingar