Landspítali
Landspítali
Landspítali

Sálfræðingur á meðferðareiningu geð- og fíknisjúkdóma

Sálfræðiþjónusta Landspítala leitar að þremur metnaðarfullum og sjálfstæðum sálfræðingum með góða samskiptafærni og áhuga á fjölbreyttu starfi í þverfaglegu spítalaumhverfi.

Eitt starfanna veitist frá 1. nóvember 2026 en tvö frá 1. janúar 2027, eða eftir nánara samkomulagi. Um er að ræða faglega krefjandi störf á spennandi vettvangi fyrir sálfræðinga sem hafa áhuga á nýsköpun og framþróun í starfi. Landspítali er þverfaglegur vinnustaður og býður upp á líflegt starfsumhverfi.

Störfin eru innan meðferðareiningar geð- og fíknisjúkdóma n.tt. á Teigi, innlagnardeild og göngudeild, og fela fyrst og fremst í sér greiningar- og meðferðarvinnu með fólki sem er að takast á við fíknivanda ásamt alvarlegum geðvanda.

Hjá Sálfræðiþjónustunni starfa um 80 sálfræðingar í ólíkum þverfaglegum teymum á ýmsum deildum Landspítala. Sálfræðiþjónustan er í stöðugri framþróun og unnið að fjölbreyttum umbótaverkefnum. Margvísleg tækifæri eru til að dýpka þekkingu í greiningu og meðferð. Lögð er áhersla á að sálfræðingar á Landspítala fái öfluga handleiðslu og símenntun í faginu.

Menntunar- og hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi sálfræðings
Þekking og reynsla af gagnreyndum aðferðum, s.s. hugrænni atferlismeðferð við fíknivanda
Þekking og reynsla af sálfræðilegri greiningu og sálmeinafræði
Þekking og reynsla af áföllum, afleiðingum þeirra og meðferð við áfallastreituröskun æskileg
Reynsla af því að stýra hópmeðferð æskileg
Þekking og reynsla af áhugahvetjandi samtali er kostur
Áhugi á að vinna í spítalaumhverfi, reynsla af því að hafa unnið í spítalaumhverfi er kostur
Reynsla af þátttöku í þverfaglegri teymisvinnu heilbrigðisstétta æskileg
Mjög góð samskiptahæfni
Hæfni til að vinna sjálfstætt og sýna frumkvæði
Góð íslenskukunnátta skilyrði
Helstu verkefni og ábyrgð
Greining, mat og meðferð á geðrænum vanda þar með talið fíknivanda, gagnreynd sálfræðimeðferð og ráðgjöf
Einstaklings- og hópmeðferð
Námskeiðahald og fræðsla
Handleiðsla og þjálfun nema í klínískri sálfræði í samræmi við reynslu
Þátttaka í þróun og uppbyggingu sálfræðiþjónustu á Landspítala
Þátttaka og uppbygging á þverfaglegri teymisvinnu
Auglýsing birt18. september 2026
Umsóknarfrestur5. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (26)
Landspítali
Teymisstjóri í aðfangaþjónstu
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á nýja réttar- og öryggisgeðdeild
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknar í geðlækningum
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur - Heimaspítali barna
Landspítali
Landspítali
Heilbrigðisgagnafræðingur - Barnaspítali Hringsins
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á vöknun í Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtla og efnaskipta
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á innrennsliseiningu dagdeildar gigtarsjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á brotaendurhæfingardeild Landakoti
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunardeildarstjóri á geðgjörgæslu
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á nýrri réttar- og öryggisgeðdeild
Landspítali
Landspítali
Íþróttafræðingur í Batasetri geðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Íþróttafræðingur í sjúkraþjálfun á Hringbraut
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í myndgreiningu
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtlasjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Ljósmóðir á meðgöngu- og sængurlegudeild
Landspítali
Landspítali
Vöru- og verkefnastjóri heilbrigðistækni hjá stafrænni framþróun
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir á Sýkla- og veirufræðideild
Landspítali
Landspítali
Sérfræðingur á sviði storkurannsókna á rannsóknarkjarna
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á barnadeild Barnaspítala Hringsins
Landspítali
Landspítali
Iðjuþjálfi - Vertu hluti af öflugu teymi iðjuþjálfa á Landakoti
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í lungnalækningum
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í fæðingarteymi
Landspítali
Landspítali
Iðjuþjálfi - Komdu að vinna með okkur í geðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Interested in Nursing Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali
Landspítali
Interested in Medical Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali