Landspítali
Landspítali
Landspítali

Teymisstjóri hjúkrunar á Heimaspítala barna

Langar þig að vera hluti af nýrri og framsækinni þjónustu sem færir sérhæfða sjúkrahúsþjónustu nær börnum og fjölskyldum þeirra?

Heimaspítali barna leitar að öflugum, sjálfstæðum og lausnamiðuðum hjúkrunarfræðingi sem vill taka þátt í að móta og þróa eina af nýjustu þjónustuleiðum Barnaspítala Hringsins. Hér gefst einstakt tækifæri til að starfa í fjölbreyttu og krefjandi umhverfi þar sem fagþekking, sveigjanleiki og góð samskipti skipta sköpum.

Heimaspítali barna er hluti af dag- og göngudeild Barnaspítala Hringsins og veitir sérhæfða heilbrigðisþjónustu í heimahúsi barna sem ella þyrftu innlögn á spítala. Markmið þjónustunnar er að veita örugga, faglega og persónumiðaða umönnun í nærumhverfi barnsins þegar það á við.

Af hverju Heimaspítali barna?

Heimaspítali barna býður upp á spennandi tækifæri fyrir hjúkrunarfræðinga sem vilja vera í fararbroddi nýrrar þjónustu og hafa raunveruleg áhrif á þróun heilbrigðisþjónustu fyrir börn á Íslandi. Þjónustan sameinar sérhæfða barnahjúkrun, sjálfstæð vinnubrögð og náið samstarf við fjölskyldur og fagfólk.

Á Barnaspítala Hringsins starfar samheldið og metnaðarfullt teymi sem vinnur að því að skapa framúrskarandi þjónustu fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Þar gefst kostur á fjölbreyttum verkefnum, faglegri þróun og þátttöku í uppbyggingu nýrrar þjónustu sem skiptir máli.

Við leggjum ríka áherslu á fagmennsku, teymisvinnu, nýsköpun og vellíðan starfsfólks. Starfshlutfall er samkomulag, en æskilegt er 70-100%. Starfið er laust frá 1. nóvember 2026 eða samkvæmt samkomulagi.

Vinnutími: Vaktir alla daga frá kl. 08:00-16:00 og 15:00-23:00.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita sérhæfða hjúkrun barna í heimahúsi
  • Fræða, ráðleggja og styðja börn og fjölskyldur þeirra
  • Taka virkan þátt í þverfaglegri teymisvinnu með öðrum fagaðilum
  • Meta þarfir sjúklinga og fylgja eftir meðferð og hjúkrun
  • Taka þátt í þróun, umbótastarfi og uppbyggingu Heimaspítala barna í samstarfi við stjórnendur og starfsfólk Barnaspítala Hringsins
  • Stuðla að öruggri og samfelldri þjónustu fyrir börn og fjölskyldur þeirra
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt starfsleyfi hjúkrunarfræðings
  • Að lágmarki 5 ára reynsla af hjúkrun barna
  • Frumkvæði, faglegur metnaður og sjálfstæði í starfi.
  • Mjög góð samskiptafærni og þjónustulund
  • Hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og í þverfaglegu teymi
  • Góð íslenskukunnátta, bæði í ræðu og riti
  • Gild ökuréttindi
  • Hreint sakavottorð
Auglýsing birt14. september 2026
Umsóknarfrestur7. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hringbraut Landspítali , 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (26)
Landspítali
Teymisstjóri í aðfangaþjónstu
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á nýja réttar- og öryggisgeðdeild
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknar í geðlækningum
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur - Heimaspítali barna
Landspítali
Landspítali
Heilbrigðisgagnafræðingur - Barnaspítali Hringsins
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á vöknun í Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtla og efnaskipta
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á innrennsliseiningu dagdeildar gigtarsjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á brotaendurhæfingardeild Landakoti
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunardeildarstjóri á geðgjörgæslu
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á nýrri réttar- og öryggisgeðdeild
Landspítali
Landspítali
Íþróttafræðingur í Batasetri geðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Íþróttafræðingur í sjúkraþjálfun á Hringbraut
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í myndgreiningu
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtlasjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Ljósmóðir á meðgöngu- og sængurlegudeild
Landspítali
Landspítali
Vöru- og verkefnastjóri heilbrigðistækni hjá stafrænni framþróun
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir á Sýkla- og veirufræðideild
Landspítali
Landspítali
Sérfræðingur á sviði storkurannsókna á rannsóknarkjarna
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á barnadeild Barnaspítala Hringsins
Landspítali
Landspítali
Iðjuþjálfi - Vertu hluti af öflugu teymi iðjuþjálfa á Landakoti
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í lungnalækningum
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í fæðingarteymi
Landspítali
Landspítali
Iðjuþjálfi - Komdu að vinna með okkur í geðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Interested in Nursing Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali
Landspítali
Interested in Medical Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali