Landspítali
Landspítali
Landspítali

Lyfjafræðingur í lyfjaþjónustu

Lyfjaþjónusta Landspítala óskar eftir lyfjafræðingi til starfa í blöndunareiningu. Um er að ræða fjölbreytt starf sem sameinar verkefni á sviði lyfjablöndunar og ráðgjafar um næringu í æð. Starfið felur meðal annars í sér verkefni tengd næringarmeðferð í æð, þar á meðal ráðgjöf og eftirfylgni, samhliða verkefnum á sviði lyfjablöndunar, gæðastarfs og þróunar starfseminnar. Í lyfjablöndun starfar samhentur 20 manna hópur lyfjafræðinga, lyfjatækna og sérhæfðs starfsfólks. Þar fer fram sérhæfð lyfjablöndun í hreinum rýmum, einkum blöndun krabbameinslyfja, sýklalyfja og næringar í æð.

Lyfjaþjónusta gegnir mikilvægu hlutverki í öruggri og markvissri lyfjameðferð sjúklinga á Landspítala. Innan þjónustunnar starfa um 90 manns við fjölbreytt verkefni sem tengjast meðal annars öflun, blöndun og dreifingu lyfja, auk faglegrar ráðgjafar og upplýsingagjafar um lyf. Lyfjaþjónusta er stöðugt að þróa starfsemi sína til að bæta lyfjaöryggi og lyfjaumsýslu á Landspítala. Nú starfa um 40 lyfjafræðingar í fjölbreyttum verkefnum á Landspítala og mikil framþróun er framundan með tilkomu nýs meðferðarkjarna.

Um er að ræða dagvinnu og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir sem stuðlar að betra jafnvægi milli vinnu og einkalífs.

Menntunar- og hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi sem lyfjafræðingur
Skipulögð, nákvæm og öguð vinnubrögð
Afbragðs samskiptahæfni og sveigjanleiki
Öflugur liðsmaður og jákvætt viðmót
Góð íslensku- og tölvukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Undirbúningur og útreikningur fyrir næringarblöndur í æð
Utanumhald á sjúklingum sem eru með næringu í æð
Fagleg ráðgjöf til heilbrigðisstarfsfólks og skjólstæðinga um næringu í æð
Samskipti við lyfjablöndun, aðrar deildir sjúkrahússins og aðrar heilbrigðisstofnanir
Umsjón, undirbúningur og framkvæmd lyfjablöndunar
Faglegt eftirlit og yfirferð á lyfjablöndum
Þátttaka í uppbyggingu gæðakerfis
Þátttaka í þjálfun nema og nýrra starfsmanna eftir því sem við á
Önnur tilfallandi verkefni
Auglýsing birt10. september 2026
Umsóknarfrestur21. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (23)
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtla og efnaskipta
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á innrennsliseiningu dagdeildar gigtarsjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á brotaendurhæfingardeild Landakoti
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunardeildarstjóri á geðgjörgæslu
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á nýrri réttar- og öryggisgeðdeild
Landspítali
Landspítali
Íþróttafræðingur í Batasetri geðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Íþróttafræðingur í sjúkraþjálfun á Hringbraut
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í myndgreiningu
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtlasjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Ljósmóðir á meðgöngu- og sængurlegudeild
Landspítali
Landspítali
Vöru- og verkefnastjóri heilbrigðistækni hjá stafrænni framþróun
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir á Sýkla- og veirufræðideild
Landspítali
Landspítali
Sérfræðingur á sviði storkurannsókna á rannsóknarkjarna
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á kvenlækningadeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í krabbameinsþjónustu
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á barnadeild Barnaspítala Hringsins
Landspítali
Landspítali
Iðjuþjálfi - Vertu hluti af öflugu teymi iðjuþjálfa á Landakoti
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í lungnalækningum
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í fæðingarteymi
Landspítali
Landspítali
Iðjuþjálfi - Komdu að vinna með okkur í geðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunardeildarstjóri göngudeildar innkirtla- og gigtarsjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Interested in Nursing Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali
Landspítali
Interested in Medical Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali