

Starfsþjálfun í áfengis- og vímuefnaráðgjöf
SÁÁ auglýsir launaðar stöður í starfsþjálfun í áfengis- og vímuefnaráðgjöf.
SÁÁ er leiðandi í heilbrigðisþjónustu við fólk með fíknsjúkdóm og fjölskyldur þeirra. Hjá okkur starfar öflugt þverfaglegt teymi að fjölbreyttri meðferð og þjónustu þar sem fagmennska, virðing og samvinna eru í fyrirrúmi.
Við bjóðum upp á launaða starfsþjálfun í 100% starfshlutfalli fyrir einstaklinga sem stefna að því að öðlast starfsleyfi sem áfengis- og vímuefnaráðgjafar.
Starfsþjálfunin er hluti af þeirri þjálfun sem þarf til að uppfylla skilyrði Embættis landlæknis fyrir starfsleyfi áfengis- og vímuefnaráðgjafa. Nemar starfa undir handleiðslu reyndra áfengis- og vímuefnaráðgjafa og annarra fagaðila og öðlast fjölbreytta reynslu af meðferð fólks með fíknsjúkdóm.
Í starfsþjálfuninni gefst tækifæri til að þróa færni í einstaklingsviðtölum, hópastarfi, fræðslu og stuðningi við sjúklinga og aðstandendur. Jafnframt fá nemar reynslu af þverfaglegu samstarfi og þeirri fjölbreyttu heilbrigðisþjónustu sem SÁÁ veitir.
- Þátttaka í áfengis- og vímuefnaráðgjöf undir handleiðslu
- Stuðningur, ráðgjöf og samskipti við sjúklinga og aðstandendur
- Þátttaka í einstaklingsviðtölum, hópastarfi og fræðslu
- Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
- Önnur verkefni sem tengjast starfsþjálfun og starfssviði áfengis- og vímuefnaráðgjafa
- Stúdentspróf eða sambærileg menntun er skilyrði
- Góð samskipta- og samstarfshæfni
- Hæfni og áhugi á að vinna með fólki í krefjandi aðstæðum
- Geta og vilji til að starfa í þverfaglegu teymi
- Ábyrgð, fagmennska og frumkvæði í starfi
- Góð íslenskukunnátta er skilyrði
- Æskilegt er að umsækjandi hafi lokið námi í fræðilegri undirstöðuþekkingu áfengis- og vímuefnaráðgjafar við Símenntun Háskólans á Akureyri
Íslenska










