

Hjúkrunarnemar - Lærdómsrík og spennandi hlutastörf með námi á bráðamatsdeild F2 Fossvogi
Við sækjumst eftir hjúkrunarnemum á öllum stigum náms til að starfa með okkur á nýrri bráðamatsdeild F2 í Fossvogi. Um er að ræða einstakt tækifæri á lærdómsríku hlutastarfi með námi á nýrri og spennandi deild þar sem mikil tækifæri eru á að efla klíníska færni í mati og meðferð bráðveikra sjúklinga.
Bráðamatsdeildin mun sinna fjölbreyttum hópi sjúklinga með bráð veikindi sem þurfa umfangsmeira mat og meðferð en unnt er að veita á bráðamóttöku. Markmið deildarinnar er að greina og hefja meðferð snemma, tryggja aðkomu reynds fagfólks með öflugri þverfaglegri teymisvinnu þar sem áherslan er á að koma sjúklingum hratt í viðeigandi úrræði innan eða utan spítalans. Deildin er opin allan sólarhringinn.
Unnið er í vaktavinnu og er starfshlutfall og vinnufyrirkomulag samkomulag. Tekið er tillit til námsins við skipulag vakta.
Áhugasömum er bent á að hafa samband við Sigríði, deildarstjóra.
Íslenska
















































