

Innköllunarstjóri - Dagdeild BH
Langar þig að starfa við mikilvægt og gefandi starf þar sem skipulag, fagmennska og samskipti skipta sköpum fyrir upplifun barna og fjölskyldna þeirra?
Við leitum að metnaðarfullum og jákvæðum hjúkrunarfræðingi til starfa sem innköllunarstjóri á dagdeild Barnaspítala Hringsins. Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem þú gegnir mikilvægu hlutverki í undirbúningi barna og fjölskyldna þeirra fyrir aðgerðir og rannsóknir, í nánu samstarfi við lækna og annað heilbrigðisstarfsfólk.
Starfið er laust frá 1. desember 2026 eða eftir samkomulagi og er starfshlutfall 60-80%.
Á Barnaspítala Hringsins starfar öflugt og samheldið teymi sem hefur það að markmiði að veita börnum og fjölskyldum þeirra framúrskarandi þjónustu í öruggu og hlýlegu umhverfi. Við erum leiðandi í sérhæfðri heilbrigðisþjónustu fyrir börn og unglinga á Íslandi. Hér gefst tækifæri til að starfa með framúrskarandi fagfólki í krefjandi, skemmtilegu og þroskandi starfsumhverfi þar sem velferð barna og fjölskyldna þeirra er ávallt í forgangi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir sem styður við betra jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
Íslenska
Enska



































