
SÁÁ
SÁÁ er almannasamtök með um sjö þúsund félagsmenn. Samtökin annast rekstur fjögurra meðferðarstofnana þar sem heilbrigðisstarfsmenn veita áfengis- og vímuefnasjúklingum faglega heilbrigðisþjónustu í hæsta gæðaflokki.
Þetta eru sjúkrahúsið Vogur, Vík á Kjalarnesi og göngudeildirnar í Von, Efstaleiti 7 í Reykjavík og Hofsbót 4 á Akureyri.

Fagstjóri sálfélagslegrar meðferðar hjá SÁÁ
SÁÁ óskar eftir öflugum og metnaðarfullum fagstjóra til að leiða starfsemi á sviði sálfélagslegrar meðferðar.
Um er að ræða fjölbreytt stjórnunarstarf þar sem reynir á leiðtogahæfni, skipulag og góða færni í mannlegum samskiptum. Fagstjóri gegnir lykilhlutverki í daglegum rekstri starfseiningar, leiðir starfsfólk og vinnur náið með framkvæmdastjóra sálfélagslegrar meðferðar og öðrum stjórnendum að áframhaldandi þróun þjónustu SÁÁ.
SÁÁ er leiðandi í heilbrigðisþjónustu við fólk með fíknsjúkdóm og fjölskyldur þeirra og býður heildstæða meðferð yfir lengri tíma. Þjónustan er veitt af öflugu þverfaglegu teymi fagfólks með sérþekkingu á fíknsjúkdómi og byggir á gagnreyndum og áfallamiðuðum starfsháttum.
SÁÁ býður upp á
- Fjölbreytt og ábyrgðarmikið stjórnunarstarf í öflugu faglegu umhverfi
- Tækifæri til að taka virkan þátt í áframhaldandi uppbyggingu og þróun starfseminnar
- Náið samstarf við stjórnendur og fjölbreyttan hóp heilbrigðisstarfsfólks
- Þverfaglegt starfsumhverfi þar sem áhersla er lögð á fagmennsku, samvinnu og stöðugar umbætur
- Fræðslu, starfsþróun og tækifæri til að efla þekkingu og færni á sviði fíknimeðferðar og stjórnunar
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg stjórnun og skipulag starfseiningar
- Línustjórn og mannaforráð starfsfólks sem heyrir undir fagstjóra
- Ábyrgð á mönnun, verkaskiptingu og samhæfingu daglegra verkefna
- Leiða starfsfólk, styðja við árangur þess og stuðla að góðri vinnustaðamenningu og samstarfi
- Tryggja að starfsemi einingarinnar sé í samræmi við stefnu, verklag og faglega umgjörð SÁÁ
- Innleiða og fylgja eftir faglegum áherslum sálfélagslegrar meðferðar í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra sálfélagslegrar meðferðar
- Stuðla að gagnreyndum starfsháttum, gæðum, öryggi og stöðugum umbótum í þjónustunni
- Fylgjast með framkvæmd þjónustu og nýta upplýsingar og gögn til að styðja við þróun og umbætur
- Taka þátt í fræðslu, starfsþjálfun og þróunarverkefnum eftir því sem við á
- Virkt samstarf við aðra fagstjóra, framkvæmdastjóra og þverfagleg teymi innan SÁÁ
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi og klínískt starfsleyfi
- Reynsla af meðferðarstarfi og/eða heilbrigðisþjónustu
- Þekking á fíknsjúkdómi og meðferð er kostur
- Stjórnunar- eða leiðtogareynsla er æskileg
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
- Sterk skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Færni til að leiða fólk, skapa traust og styðja við árangur starfsfólks
- Faglegur metnaður og áhugi á þróun, gæðum og umbótum
- Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli
Auglýsing birt17. september 2026
Umsóknarfrestur8. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Vík, Kjalarnesi
Efstaleiti 7, 103 Reykjavík
Stórhöfði 45, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FélagsráðgjafiSálfræðingurTeymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (10)

Lausar stöður sálfræðinga með möguleika á hlutastarfi
SÁÁ

Sérkennsla/atferlisfræðingur í Ægisborg
Leikskólinn Ægisborg

Forstöðumaður stuðnings- og stoðþjónustu fyrir fullorðið fatlað fólk
Skrifstofa starfsstöðva og þróunar

Sálfræðingur
Reykjalundur

Ráðgjafi VIRK á Höfuðborgarsvæðinu
VIRK Starfsendurhæfingarsjóður

Félagsráðgjafi á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða

Sálfræðingur - Geðheilsumiðstöð barna HH
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Skaðaminnkandi verkefni Rauða krossins - 50-70% starf í Ylju
Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu

Þroskaþjálfi eða atferlisfræðingur í Varmárskóla
Varmárskóli

Skaðaminnkandi verkefni Rauða krossins - helgarvinna á laugardögum í Ylju
Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu