SÁÁ
SÁÁ
SÁÁ

Læknir óskast til starfa hjá SÁÁ

Laus er til umsóknar staða læknis á sjúkrahúsinu Vogi. Við leitum að lækni sem hefur áhuga á meðferð og þjónustu við fólk með fíknsjúkdóm og fjölskyldur þeirra. Helst er óskað eftir lækni í 100% starf en hlutastarf eða tímabundið starf kemur einnig til greina.

Starf hjá SÁÁ býður upp á einstakt tækifæri til að öðlast víðtæka klíníska reynslu og sérhæfða þekkingu á greiningu og meðferð fíknsjúkdóma. Sú þekking nýtist læknum á fjölmörgum sviðum heilbrigðisþjónustunnar enda er fíknivandi oft samofinn öðrum líkamlegum, geðrænum og félagslegum vanda.

Sjúkrahúsið Vogur er 40 rúma sjúkrahús þar sem veitt er inniliggjandi afeitrun og meðferð ásamt undirbúningi að áframhaldandi endurhæfingu. Starfið fer fram í öflugu þverfaglegu umhverfi þar sem lækningasvið, hjúkrunarsvið og sálfélagsleg meðferð vinna náið saman að heildstæðri þjónustu við sjúklinga.

Við Vog er jafnframt starfrækt sérhæfð göngudeild í lyfjameðferð við ópíóíðafíkn sem sinnir um 400 einstaklingum. Þar gefst læknum tækifæri til að öðlast reynslu af sérhæfðri lyfjameðferð, meðal annars með buprenorphine, buprenorphine/naloxone og methadone, ýmist per os, sublingual eða með subcutan forðasprautum. Starfið býður þannig upp á tækifæri til að byggja upp sérþekkingu á sviði sem hefur vaxandi vægi innan heilbrigðisþjónustunnar.

Þjónusta SÁÁ nær jafnframt yfir áframhaldandi sálfélagslega meðferð á meðferðarstöðinni Vík á Kjalarnesi, þar sem allt að 60 einstaklingar geta verið í meðferð hverju sinni, auk fjölbreyttrar göngudeildarþjónustu í Efstaleiti í Reykjavík og á Akureyri. Læknar hjá SÁÁ starfa því innan öflugs þverfaglegs meðferðarkerfis og fá innsýn í ólík stig meðferðar – frá afeitrun og sérhæfðri lyfjameðferð til sálfélagslegrar meðferðar og áframhaldandi eftirfylgdar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg læknisþjónusta á sérhæfðu sjúkrahúsi fyrir fólk með fíknsjúkdóm.

  • Mat, innlagnir, greining og meðferð vegna fráhvarfa og annarra heilsufarslegra afleiðinga neyslu.

  • Þátttaka í vaktþjónustu SÁÁ, bæði á Vogi og fyrir aðrar starfsstöðvar samtakanna.

  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu með hjúkrunarfræðingum, sjúkraliðum, áfengis- og vímuefnaráðgjöfum, sálfræðingum og öðru fagfólki.

  • Þátttaka í fræðslu fyrir sjúklinga og fagfólk.

  • Samstarf við önnur fagsvið SÁÁ um meðferð, eftirfylgd og áframhaldandi þjónustu við sjúklinga.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt lækningaleyfi er skilyrði.

  • Bæði almennir læknar og sérfræðilæknar koma til greina. Sérfræðimenntun, t.d. í geðlækningum, heimilislækningum eða lyflækningum, er kostur en ekki skilyrði.

  • Góð íslenskukunnátta og/eða mjög góð enskukunnátta.

  • Góð samskiptafærni, samstarfshæfni og skipulögð vinnubrögð.

  • Áhugi á fíknlækningum, þverfaglegu samstarfi og þjónustu við fólk með fíknsjúkdóm.

Auglýsing birt16. september 2026
Umsóknarfrestur30. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Stórhöfði 45, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Læknir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar