
Reykjalundur
Á Reykjalundi fer fram alhliða endurhæfing sem miðar að því að bæta lífsgæði, færni og sjálfsbjargargetu þeirra sem þangað leita. Reykjalundur er heilbrigðisstofnun í eigu Sambands íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga (SÍBS) og vinnur samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Um þjónustuna gildir þjónustusamningur milli Sjúkratrygginga Íslands og Reykjalundar.

Sálfræðingur
Viltu verða hluti af samheldnum og metnaðarfullum hópi sálfræðinga sem starfa á Reykjalundi ? Laus er til umsóknar staða sálfræðings á Reykjalundi endurhæfingu ehf. Um er að ræða fullt starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Á Reykjalundi starfa sálfræðingar í átta þverfaglegum teymum þar sem áhersla er lögð á skjólstæðingsmiðaða nálgun og heildræna sýn. Í þverfaglegum teymum á Reykjalundi starfa auk sálfræðinga, félagsráðgjafar, iðjuþjálfarar, sjúkraþjálfarar, næringarfræðingar, íþróttafræðingar, sjúkraliðar, hjúkrunarfræðingar og læknar. Mötuneyti er á staðnum og aðgengi starfsfólks að heilsurækt og sundlaug.
Auglýsing birt14. september 2026
Umsóknarfrestur27. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Reykjalundi
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMetnaðurSálfræðingur
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)


