

Íþróttafræðingur
Viltu verða hluti af samheldnum og metnaðarfullum hópi íþróttafræðinga sem starfar á Reykjalundi.
Laus er til umsóknar staða íþróttafræðings á Reykjalundi endurhæfingu ehf.
Á Reykjalundi starfa átta þverfagleg meðferðarteymi á tveimur meðferðarsviðum og er starfið því fjölbreytt. Áhersla er lögð á skjólstæðingsmiðaða nálgun og heildræna sýn.
Í þverfaglegum teymum á Reykjalundi starfa auk íþróttafræðinga, sjúkraþjálfarar, iðjuþjálfar, sálfræðingar, næringarfræðingar, félagsráðgjafar, sjúkraliðar, hjúkrunarfræðingar og læknar.
Mötuneyti er á staðnum og aðgengi starfsfólks að heilsurækt, starfsmannaleikfimi og sundlaug.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Hæfniskröfur:
- BSc próf í íþróttafræði.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
- Áhugi á þverfaglegri teymisvinnu og samstarfi.
- Áhugi, metnaður og sjálfstæði í starfi.
Laun greiðast samkvæmt gildandi kjarasamningi Visku og SFV (Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu), auk gildandi stofnanasamnings Reykjalundar við starfandi íþróttafræðinga á Reykjalundi.
Upplýsingar um starfið veita Björg Hákonardóttir sviðsstjóri þjálfunar, [email protected] og Guðbjörg Gunnarsdóttir mannauðsstjóri [email protected]
Upplýsingar um Reykjalund má finna á heimasíðu Reykjalundar www.reykjalundur.is
Íslenska


