
Ertu reynslumikill gönguskíðakennari sem langar í spennandi vetrarverkefni á Austfjörðum?
Við leitum að öflugum aðila í teymið okkar til að sjá um gönguskíðakennslu fyrir hópa á Norðfirði á komandi vetri. Við hjá Hildibrand erum á fullu í því að byggja upp fjölbreytta og skemmtilega afþreyingu á svæðinu og okkur vantar nýjan liðsfélaga til að vaxa með okkur. Ef þú hefur brennandi áhuga á útivist og skíðamennsku ertu klárlega manneskjan sem okkur vantar. Það skemmir svo alls ekki fyrir ef þú ert líka með leiðsögumannapróf eða reynslu af leiðsögn – það væri frábær bónus fyrir teymið!
Skipulagning og framkvæmd gönguskíðakennslu fyrir ólíka hópa.
Leiðsögn og kennsla á skíðum í fallegu umhverfi á Norðfirði.
Skapa jákvæða og hvetjandi upplifun fyrir þátttakendur.
Búa yfir góðri reynslu af gönguskíðakennslu og með meðmæli.
Rík þjónustulund, sjálfstæð vinnubrögð og góð samskiptahæfni.
Húsnæði: Íboði á meðan á verkefninu stendur
Íslenska
Enska
