
Umsjónarmaður íþróttaskóla HK
HK leitar að öflugum umsjónaraðila sem hefur brennandi áhuga á að leiða íþróttaskóla HK.
Okkur vantar einstakling í skemmtilegt og skapandi starf með börnum í íþróttaskóla HK fyrir starfsárið 2026-2027.
Íþróttaskóli HK er fyrir börn á aldrinum 18 mánaða – 5 ára og hefur verið starfræktur hjá HK um árabil.
Í íþróttaskólanum kynnast börnin íþróttum á skemmtilegan og fjölbreyttan hátt. Börnin þjálfa fín og- grófhreyfingar, jafnvægi, styrk, úthald ásamt líkamsvitund.
Tímarnir eru á sunnudagsmorgnum í íþróttahúsi Kórsins.
Leiðbeina börnum í leik og starfi skólans.
Skipulagning á faglegu starfi íþróttaskólans.
Samskipti og samstarf við foreldra, starfsfólk HK og aðra sem koma að starfi íþróttaskólans.
Íþróttafræði eða uppeldisfræðimenntun er kostur.
Reynsla af starfi með börnum.
Reynsla af íþróttastarfi.
Frumkvæði, gleði og sjálfstæði í starfi.
Hæfni í mannlegum samskiptum.
Hreint sakavottorð.
Góð íslenskukunnátta.


