Ás styrktarfélag
Ás styrktarfélag
Ás styrktarfélag

Ás styrktarfélag leitar að öflugum forstöðumanni

Ás styrktarfélag leitar að framsýnum og metnaðarfullum forstöðumanni til að leiða starfsemi íbúðarkjarna á höfuðborgarsvæðinu. Starfið felur í sér faglega forystu, rekstrarlega ábyrgð og þróun þjónustu þar sem virðing, sjálfsákvörðunarréttur og þátttaka íbúa eru höfð að leiðarljósi.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Áss Styrktarfélags við viðeigandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Bryndís Theódórsdóttir mannauðsstjóri í síma 4140500.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita búsetukjarnanum faglega og rekstrarlega forystu.
  • Tryggja að þjónusta sé veitt í samræmi við lög, reglur, gæðaviðmið og verkferla
  • Stuðla að einstaklingsmiðaðri þjónustu sem byggir á óskum, styrkleikum og þörfum íbúa.
  • Annast ráðningar, starfsmannamál og vinnuskipulag.
  • Tryggja að þjónustuáætlanir séu uppfærðar og endurspegli markmið og óskir íbúa.
  • Efla samstarf við íbúa, aðstandendur, viðkomandi sveitarfélag og aðrar samstarfsstofnanir.
  • Hafa umsjón með fjármálum og rekstri sem tengjast starfseminni.

 

 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Stjórnunarreynsla og reynsla af mannaforráðum. 
  • Þekking og reynsla af þjónustu við fatlað fólk.
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni. 
  • Frumkvæði, skipulagsfærni og sjálfstæð vinnubrögð.
Fríðindi í starfi

36 tíma vinnuvika. 

Auglýsing birt17. september 2026
Umsóknarfrestur28. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Brekkuás 2, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Vaktaskipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar