

Aðstoðardeildarstjóri á Eir, blundar í þér stjórnandi?
Eir óskar eftir metnaðarfullum, áhugasömum og hressum hjúkrunarfræðingi í stöðu aðstoðardeildarstjóra í fullt starf.
Önnur hæð heimilisins er blönduð deild með 42 íbúum. Við leggjum áherslu á heimilislegan brag, jákvæðni, samvinnu og samveru. Mikil áhersla er lögð á að starfsfólk fái þjálfun við að mæta sérþörfum heimilisfólks.
Mikilvægt er að viðkomandi geti tekið þátt í teymisvinnu, setið fjölskyldufundi og verið í samskiptum við ættingja.
Aðstoðardeildarstjóri starfar náið með öðrum stjórnendum og fylgir eftir ákvörðunum um skipulag hjúkrunar og verklag á deild sem og innleiðingu nýjunga í hjúkrun er stuðla að auknum gæðum, vellíðan og öryggi sjúklinga.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð og skipulagning á hjúkrunarþjónustu í samráði við deildarstjóra.
- Aðstoðardeildarstjóri er staðgengill hjúkrunardeildarstjóra.
- Sérstök ábyrgð á tilteknum verkefnum og gæðastarfi.
- Almenn störf hjúkrunarfræðings/vaktstjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Íslenskt hjúkrunarleyfi er skilyrði.
- Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og faglegur metnaður.
- Jákvætt viðmót og framúrskarandi samskiptahæfni.
- Stjórnunarreynsla er kostur.
- Reynsla af RAI-mælitækinu er kostur.
- Góð íslenskukunnáttu er skilyrði
Umsóknarfrestur:
Umsóknarfrestur er til og með 4. október 2026 og hvetjum við öll áhugasöm sem uppfylla ofangreindar hæfnikröfur til að sækja um starfið. Umsókn þarf að fylgja náms- og starfsferilsskrá. Öllum umsóknum verður svarað.
Laun greidd samkvæmt gildandi stofnanasamningi Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu.
Nánari upplýsingar veitir:
Eygló Tómasdóttir, forstöðumaður hjúkrunar á netfanginu [email protected] eða í síma 522-5798.
Hlökkum til að heyra frá þér!
Eir, Hamrar og Skjól hjúkrunarheimili hafa hlotið jafnlaunavottun í samræmi við kröfur staðalsins ÍST 85.
Íslenska










