
Tvær stöður þjónustufulltrúa við embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu (LRH) leitar eftir drífandi og metnaðarfullum aðilum í tvær stöður þjónustufulltrúa hjá embættinu. Önnur staðan tilheyrir sektarþjónustu og hin ritarahópi ákærusviðs. Um er að ræða spennandi, krefjandi og fjölbreytt störf í þjónustudeild sem heyrir undir stjórnsýslu- og þjónustusvið embættisins.
Þjónustudeild sinnir stoð- og þjónustuhlutverkum fyrir bæði almenning og aðra hluta lögreglu. Deildin starfrækir m.a. ritaraþjónustu, skýrsluþjónustu, sektarþjónustu, þjónustuborð og munavörslu. Deildin hefur nýlega flutt í nýtt sameinað rými sem hefur skapað líflegt vinnuumhverfi þar sem teymisandi er í forgrunni. Jafnframt er verið að innleiða nýtt þjónustukerfi og kortleggja þjónustuferla með einföldun og skilvirkni að leiðarljósi.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem er til staðar fyrir alla alltaf. Megin áhersla er lögð á jafnrétti, starfsánægju, heilbrigðan starfsanda, traust og gagnsæi í samskiptum og að starfsfólk búi yfir þekkingu og hæfni til að takast á við fjölbreytileg verkefni. Starfsfólk embættisins er um 450 á fjórum megin starfsstöðvum.
Gildi embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu eru TRAUST, FAGMENNSKA og ÖRYGGI.
- Fjölbreytt verkefni tengdum þjónustu við innri og ytri aðila. Upplýsingamiðlun og ráðgjöf, símsvörun, móttaka erinda, skráningar og miðlun upplýsinga innan og utan embættisins. Ritun, ljósritun, flokkun, afhending og frágangur mála.
- Skráning og flokkun mála í þjónustukerfi og önnur kerfi embættisins.
- Upplýsingamiðlun og leiðbeiningar til borgara um stöðu mála og næstu skref.
- Eftirfylgni við erindi og samskipti við kærendur til að tryggja góða þjónustuupplifun.
- Þátttaka í umbóta- og þróunarverkefnum tengdum þjónustuferlum og stafrænni þróun deildarinnar.
- Stúdentspróf eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af þjónustu-, móttöku- eða sambærilegu starfi er kostur.
- Reynsla af umbótavinnu er kostur.
- Reynsla af beiðna- eða þjónustukerfum (s.s. Zendesk, Salesforce eða sambærilegum) er kostur.
- Þekking á starfsemi lögreglu og/eða opinberri stjórnsýslu er kostur.
- Framúrskarandi samskiptahæfni og rík þjónustulund.
- Mikið frumkvæði, sveigjanleiki og gott álagsþol.
- Skipulögð, vönduð og nákvæm vinnubrögð.
- Góð almenn tölvukunnátta og áhugi á stafrænum lausnum.
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
Þess er vænst að umsækjandi hafi reynslu af störfum þar sem reynt hefur á þessa eiginleika og færni. Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið, auk afrita af prófskírteinum.
Íslenska
Enska










