Dómsmálaráðuneytið
Dómsmálaráðuneytið
Dómsmálaráðuneytið

Schengen, fjármál og styrkir – er þetta starf fyrir þig?

Dómsmálaráðuneytið leitar að sérfræðingi til að starfa í verkefnastýringu og umsýslu sjóða tengdum Schengen-samstarfinu á skrifstofu fjármála. Skrifstofan fer með málefni er varða fjármálaáætlun, rekstur og fjármál ráðuneytisins, húsnæðismál, stafræn verkefni og málefni landamærasjóðs.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið felur í sér stefnumótun, verkefnastjórnun, uppgjör á verkefnum og undirbúning ákvarðana sem varða málefni styrktarsjóðs Evrópusambandsins um landamæri og áritanir (Border Management and Visa Instrument). Jafnframt felur starfið í sér samskipti, upplýsingagjöf og eftirfylgni vegna umsókna auk yfirferðar á tölulegum gögnum og framvinduskýrslum. Sérfræðingurinn sinnir stjórnsýslu- og vettvangsathugunum hjá styrkþegum, meðal annars með því að yfirfara hvort innkaup þeirra séu í samræmi við reglur um opinber innkaup, og tekur þátt í innra eftirliti og samskiptum við endurskoðendur. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi. 
  • Reynsla af verkefnastjórnun og stefnumótun er kostur. 
  • Reynsla af yfirferð og úrvinnslu styrkumsókna er kostur. 
  • Reynsla af umsýslu styrktarsjóða ESB og þekking á tilheyrandi regluverki er kostur. 
  • Reynsla af greiningu fjárhagslegra gagna, innri endurskoðun eða innra eftirliti er kostur. 
  • Þekking á lögum um opinber innkaup eða reynsla af framkvæmd og yfirferð innkaupaferla er kostur. 
  • Góð samskiptahæfni, frumkvæði og lausnamiðuð hugsun. 
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti. 
Auglýsing birt1. október 2026
Umsóknarfrestur12. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skúlagata 4, 101 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar