Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Sérfræðingur í fíkniefnagreiningu Tæknideildar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu (LRH) leitar eftir metnaðarfullum og dugmiklum einstaklingi í starf sérfræðings í fíkniefnagreiningu Tæknideildar.

Tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er vettvangs- og réttarrannsóknadeild sem sinnir fjölbreyttum rannsóknum fyrir öll lögregluembætti landsins þegar alvarlegri afbrot og slys eiga sér stað.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem er til staðar fyrir alla alltaf. Megin áhersla er lögð á jafnrétti, starfsánægju, heilbrigðan starfsanda, traust og gagnsæi í samskiptum og að starfsfólk búi yfir þekkingu og hæfni til að takast á við fjölbreytileg verkefni. Starfsfólk embættisins er um 500 á fjórum megin starfsstöðvum.

Gildi embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu eru TRAUST, FAGMENNSKA og ÖRYGGI.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Rannsóknir á ávana og fíkniefnum, í því fellst m.a. greining, vigtun og skráning.

  • Samskipti við innlendar og erlendar rannsóknarstofur vegna framhaldsrannsókna.

  • Samskipti við lögreglumenn og ákærendur vegna mála sem eru til rannsóknar.

  • Skýrslugerð vegna rannsókna og vitnisburður fyrir dómi þegar þörf er á.

  • Fylgjast með breytingum og samsetningu haldlagðra fíkniefna.

  • Þátttaka í umbótaverkefnum Tæknideildar og þróun verkferla.

  • Tryggja fagleg gæði rannsókna og að málshraði sé í samræmi við markmið.

  • Kynna starfsemina innan og utan lögreglu þegar þess er þörf.

  • Ber ábyrgð á meðhöndlun og frágangi efna á meðan þau eru í vörslu Tæknideildar.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • B.Sc. í efnafræði, lyfjafræði, lífeindafræði eða sambærileg menntun. M.Sc. sem nýtist í starfi er kostur.

  • Reynsla af störfum á rannsóknarstofu er kostur.

  • Þekking og reynsla af rannsóknum og meðhöndlun hættulegra efna er kostur.

  • Þekking og reynsla á gæðamálum s.s. gerð og viðhaldi verklagsreglna er kostur.

  • Þekking og reynsla af öðrum tæknirannsóknum er kostur.

  • Reynsla af störfum fyrir lögreglu er kostur.

  • Mjög góð samskiptahæfni, þjónustulund, jákvæðni og sveigjanleiki.

  • Skipulagshæfni, nákvæmni, frumkvæði, sjálfstæði í starfi og lausnamiðuð vinnubrögð.

Með umsókn skal fylgja greinargóð ferilskrá yfir menntun og fyrri störf, staðfesting á námi og kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknarinnar og rökstyður hæfni sína í starfið.

Auglýsing birt16. september 2026
Umsóknarfrestur2. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hverfisgata 113-115 115R, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar