KPMG á Íslandi
KPMG á Íslandi
KPMG á Íslandi

Microsoft ráðgjafi

Viltu taka þátt í að byggja upp og leiða Microsoft ráðgjöf KPMG á Íslandi?


Microsoft Copilot, gervigreind, gögn og skýjalausnir eru að umbreyta rekstri fyrirtækja og stofnana. Við erum í sterkri sókn á þessu sviði og leitum að öflugum ráðgjafa sem vill leiða áframhaldandi uppbyggingu og vöxt Microsoft ráðgjafar KPMG á Íslandi.


Í starfinu færð þú tækifæri til að þróa ný viðskiptatækifæri, byggja upp sterk tengsl og hjálpa viðskiptavinum að ná raunverulegum árangri með Microsoft lausnum. Þú munt vinna þvert á ráðgjöf, sölu og stefnumótun ásamt því að eiga samstarf við sérfræðinga KPMG hér á landi og erlendis.


Ef þú hefur brennandi áhuga á tækni og viðskiptaþróun og vilt hafa áhrif á hvernig fyrirtæki nýta Microsoft lausnir, viljum við heyra frá þér.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Byggja upp og þróa viðskiptatækifæri á sviði Microsoft.
  • Ráðleggja stjórnendum fyrirtækja og stofnana og leiða umbreytingarverkefni frá hugmynd að árangri.
  • Móta og kynna lausnir á sviði Microsoft Copilot, Microsoft 365, Data & AI og Power Platform.
  • Greina þarfir viðskiptavina og tengja þær við lausnir sem skapa mælanlegt virði.
  • Byggja upp öflug tengsl við viðskiptavini, Microsoft og samstarfsaðila.
  • Taka virkan þátt í að móta og þróa þjónustuframboð KPMG á sviði Microsoft-lausna.


Hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af ráðgjöf, sölu eða viðskiptaþróun, helst á sviði upplýsingatækni.
  • Góð þekking á Microsoft lausnum og skilningur á því hvernig tækni getur skapað virði fyrir viðskiptavini.
  • Reynsla af því að greina og þróa ný viðskiptatækifæri og byggja upp viðskiptasambönd.
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni og geta til að byggja upp traust.
  • Frumkvæði, drifkraftur og metnaður til að ná árangri.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð og hæfni til að vinna vel í teymi.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli.


Í samræmi við markmið okkar í jafnréttismálum hvetjum við allt fólk til að sækja um óháð kyni.


Að vinna hjá KPMG

Hjá KPMG á Íslandi starfa um 240 einstaklingar á 10 skrifstofum um land allt. Við erum fjölbreyttur hópur með ólíka menntun og reynslu sem vinnur saman að því að skapa virði fyrir viðskiptavini og samfélagið.

Við leggjum áherslu á öfluga starfsþróun, sveigjanleika og stuðningsríkt vinnuumhverfi þar sem fólk fær tækifæri til að vaxa, deila þekkingu og ná árangri saman.


Nokkur dæmi um kosti þess að vinna hjá KPMG:

  • Fjölbreytt og krefjandi verkefni með raunveruleg áhrif.
  • Öflug tækifæri til starfsþróunar og samstarfs við sérfræðinga KPMG hér á landi og erlendis.
  • Sveigjanlegt vinnuumhverfi og möguleiki á að vinna frá mismunandi starfsstöðvum og að heiman þegar við á.
  • Heilsueflandi vinnustaður með líkamsræktarstyrk, samgöngustyrk og KPMGfit æfingum.
  • Fyrsta flokks mötuneyti í Borgartúni með fjölbreyttu og hollu fæði.
  • Stuðningur við andlega heilsu í gegnum Kara velferðartorg.
  • Stuðningsúrræði og styrkur fyrir verðandi og nýbakaða foreldra.
  • Einn launaður dagur á ári til sjálfboðavinnu.
  • Og margt fleira.


Umsóknarfrestur er til og með 20. október.

Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréf óskast fylltar út á heimasíðu KPMG (sækja um hér til hliðar). Nánari upplýsingar veita Hildur Steinþórsdóttir, sérfræðingur í mannauðsmálum, í [email protected] og Davíð Halldórsson, hluthafi ráðgjafarsvið, í [email protected].

Auglýsing birt8. október 2026
Umsóknarfrestur20. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Borgartún 27, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar