Alfreð
Alfreð
Alfreð

Vöruhönnuður

Alfreð leitar að vöruhönnuði til að leiða hönnun á vörum fyrirtækisins, Giggó og Alfreð, liðsauka sem brennur fyrir góðri hönnun og notendaviðmóti, tekur ábyrgð á verkefnum sínum og gerir kröfur til eigin vinnu. Viðkomandi fær mikið frelsi til að móta vörurnar, koma með eigin hugmyndir og nýta sköpunarkraftinn.

Starfið heyrir undir vörustjóra og er unnið í nánu samstarfi við forritara, markaðsteymi og annað starfsfólk fyrirtækisins. Þetta er einstakt tækifæri til að hanna vöru sem er nýjung á markaðnum og vera hluti af alþjóðlegu fyrirtæki í miklum vexti, bæði innanlands og erlendis.

Alfreð er vinnustaður þar sem yfir þrjátíu manns vinna í fjórum löndum, auk þriggja annara landa sem sérleyfishafar starfrækja. Við erum með skrifstofu í Kópavogi og þar líður okkur vel saman auk dótturfélagsins Stokks, í að þróa stafrænar vörur, sem létta fólki lífið.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Valdimarsdóttir, vörustjóri Giggó á [email protected].

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ásýnd (UI) og notendaflæði (UX) á vörum fyrirtækisins; Giggó og Alfreðs
  • Byggja upp og viðhalda hönnunarkerfum fyrirtækisins
  • Safna endurgjöf og þróa vörurnar áfram svo hún verði einfaldari í notkun og betri
  • Framkvæma kannanir, viðtöl, notendaprófanir og gagnagreiningu til að finna hvar notendur lenda í vandræðum og hvað vantar á markaðinn
  • Vinna náið með vörustjóra, forriturum og fleirum að því að gera hugmyndir að virkum lausnum
  • Nýta ný tól og aðferðir, m.a. gervigreind, til að auka skilvirkni og gæði í þróun
  • Tala fyrir góðri notendaupplifun og leggja til úrbætur sem bæta bæði virkni og útlit
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af hönnun hugbúnaðar og lausnum sem hafa farið í rekstur
  • Reynsla af því að setja upp og viðhalda hönnunarkerfum
  • Skilningur á notendahegðun og færni í að greina hana út frá gögnum
  • Góð tök á Figma
  • Góð tök á UX/UI, samkennd með notendum og þekking á evrópskum aðgengisstöðlum
  • Skýr samskipti, góð færni í samstarfi og hæfni til að útskýra hönnunarákvarðanir fyrir stjórnendum
Auglýsing birt13. október 2026
Umsóknarfrestur25. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Akralind 8, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FigmaPathCreated with Sketch.Notendaupplifun (UX)PathCreated with Sketch.Notendaviðmót
Starfsgreinar
Starfsmerkingar