Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Forstöðumaður Stafrænnar þróunar

Viltu taka þátt í að tengja heiminn í gegnum Ísland hjá einu stærsta þjónustufyrirtæki landsins?

Forstöðumaður stafrænnar þróunar vinnur þvert á starfsemi Isavia með það að markmiði að efla stafrænan þroska félagsins og nýta tækni, gögn og nýjar aðferðir til að skapa virði. Stafræn þróun er mikilvægur þáttur í stefnu Isavia og snýr ekki eingöngu að innleiðingu nýrra lausna heldur einnig að þróun hæfni, vinnulags, ferla, gagnanýtingar og þjónustu.

Við leitum að öflugum og reyndum leiðtoga til að leiða teymi sérfræðinga á sviði gagna og hugbúnaðarþróunar. Einingin telur 11 starfsmenn og vinnur náið með ólíkum sviðum félagsins að því að greina tækifæri, efla stafræna hæfni og styðja við breytingar sem auka skilvirkni, bæta upplifun viðskiptavina og starfsfólks og stuðla að áframhaldandi stafrænni umbreytingu Isavia.

Nýr forstöðumaður leiðir áfram stafræna þróun í nánu samstarfi við ólík svið Isavia, kemur auga á tækifæri og hvetur til nýrra leiða til að nýta tækni og gögn. Hlutverkið felur meðal annars í sér að styðja svið félagsins við að nýta stafrænar lausnir betur, einfalda og endurhugsa ferla og skapa umhverfi þar sem starfsfólk getur sjálft nýtt tækni og nýjar aðferðir til að bæta vinnulag, þjónustu og árangur.

Það felur meðal annars í sér:

  • Að leiða stefnumótun og þróun stafrænna lausna fyrir Isavia og dótturfélög

  • Forgangsröðun og samræmingu stafrænna umbótaverkefna í samstarfi við aðrar deildir

  • Að koma auga á tækifæri til að nýta stafrænar lausnir til að bæta þjónustu, auka skilvirkni og styðja við nýsköpun

  • Tryggja að stafrænar lausnir séu hannaðar með notendaupplifun, öryggi og sjálfbærni að leiðarljósi

  • Samstarf við innri og ytri hagsmunaaðila um þróun og innleiðingu lausna

  • Stuðla að menningu nýsköpunar og stafrænnar hugsunar innan fyrirtækisins

  • Ábyrgð á fjárhagsáætlun, verkefnastýringu og umbótaverkefnum innan deildarinnar

  • Umsjón með þjónustusamningum við dótturfélög og samræming þjónustu við deildir innan Isavia.

Við horfum til einstaklinga sem hafa náð markverðum árangri í stafrænni þróun og horfa á öll verkefni frá sjónarhóli notanda.

Umsóknir óskast ásamt ferilskrá og kynningarbréfi (í einu skjali). Umsóknarfrestur er til og með 18. október nk.

Nánari upplýsingar veitir:

Kristján Pétur Sæmundsson, Brú Talent, [email protected]

Auglýsing birt2. október 2026
Umsóknarfrestur18. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dalshraun 3, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.GagnagreiningPathCreated with Sketch.Hönnun ferlaPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Notendaupplifun (UX)PathCreated with Sketch.Stefnumótun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar