
Sensa ehf.
Sensa er alþjóðlegt þjónustufyrirtæki og starfar þar reynslumikill hópur sérfræðinga með hátt þekkingarstig. Við bjóðum upp á sveigjanlegt vinnuumhverfi þar sem reynt er að koma til móts við þarfir hvers og eins eftir bestu getu.
Markmið Sensa er að vera ávallt í fararbroddi þar sem sterk liðsheild, hátt þekkingarstig og verðmæt viðskiptasambönd spila stórt hlutverk. Áhersla er lögð á að starfsfólk styrki sig í þekkingu og menntun með ýmsu móti og geti vaxið á eigin forsendum. Okkur er ekki sama eru einkunnarorð Sensa, okkur er ekki sama um viðskiptavininn eða starfsmenn okkar.
Eigandi Sensa er SoftwareOne sem er alþjóðlegt upplýsingatæknifyrirtæki með höfuðstöðvar í Swiss.

Sérfræðingur í net- og öryggislausnum
Sensa leitar að öflugum sérfræðingi í net- og öryggislausnahóp fyrirtækisins. Verkefnin snúa meðal annars að því að þróa og reka núverandi netkerfi hjá viðskiptavinum á Íslandi og erlendis, ásamt okkar eigin hýsingarneti og öryggislausnum.
Viðkomandi þarf að vera lausnamiðaður, viljugur til að læra og hafa áhuga á að vinna í krefjandi og spennandi umhverfi. Einnig þarf viðkomandi að geta unnið sjálfstætt og leitt áfram tæknileg verkefni hjá viðskiptavinum ásamt því að vinna þétt með reynslumiklum tæknimönnum á ýmsum sviðum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Þekking og reynsla í net- og/eða öryggislausnum er krafa
- Þekking og reynsla í hönnun/innleiðingu/rekstri tæknilegra lausna er krafa
- Menntun á sviði tölvunarfræði/kerfisfræði og/eða verkfræði er kostur
- Prófgráða frá Cisco, Fortinet og/eða Palo Alto er kostur
- Færni í mannlegum samskiptum og leiðtogahæfni
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Fríðindi í starfi
- Samgöngustyrkur fyrir þá sem kjósa annan ferðamáta en einkabílinn
- Heilsueflingarstyrkur
- Hjólageymsla, líkamsræktar- og sturtuaðstaða
- Fyrsta flokks mötuneyti
- Sveigjanlegur vinnutími
Auglýsing birt4. september 2026
Umsóknarfrestur20. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Lyngháls 4, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
CiscoFortinetPalo Alto
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Backend Software Engineer
Asana

Senior Backend Software Engineer
Asana

Sérfræðingur í gagnavinnslu og sjálfvirknivæðingu
Úrvinnslusjóður

Tæknimaður í net- og öryggislausnum
Sensa ehf.

Kerfisstjóri = Geimfari
Atmos Cloud

Kerfisstjóri/netstjóri í flugleiðsöguþjónustu
Avians

Þjónustusérfæðingur
Helix Health

Hugbúnaðarsérfræðingur
Verkís

OK leitar að starfsfólki á NOC vaktborð - Hlutastarf/Helgarvaktir
OK

Technical Director
Fenris Creations

Appforritari
Sýn

Liðsstjóri Samþættingateymis
Sýn