HS Orka
HS Orka
HS Orka

Yfirverkefnastjóri auðlinda

Yfirverkefnastjóri auðlinda ber ábyrgð á undirbúningi, framkvæmd og eftirfylgni verkefna sem tengjast auðlindastýringu, rannsóknum og nýsköpun með það að markmiði að tryggja sjálfbæra og hagkvæma nýtingu jarðhitakerfa HS Orku. Starfið felur í sér greiningu á stöðu og þróun auðlinda, frumkvæði að umbótum og nýsköpun, sem og virka miðlun upplýsinga til hagsmunaaðila.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stýra og fylgja eftir verkefnum tengdum auðlindastýringu og eftirliti fyrir jarðhitakerfi sem nú eru í rekstri ásamt þróun og auðlindamati á nýjum jarðhitasvæðum. 

  • Rannsóknir og nýsköpun á sviði auðlinda. 

  • Taka þátt í undirbúningi og framkvæmd verkefna, þar á meðal borframkvæmda, mælinga og þróunarverkefna. 

  • Vinna að gerð verkefna- og kostnaðaráætlana og eftirfylgni með fjárhagslegum og tæknilegum þáttum verkefna. 

  • Meta stöðu auðlinda og veita ráðgjöf um nýtingu, vinnslumöguleika og sjálfbæran rekstur. 

  • Þróa nýjar aðferðir, verkferla og tæknilausnir sem nýtast við ákvarðanatöku í auðlindastýringu. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • MSc gráða í verkfræði.  

  • Góð þekking á jarðhitanýtingu, forðafræði, mælingum og rannsóknum tengdum jarðhitakerfum. 

  • Kunnátta í forritun (t.d. Python og SQL) og reynsla af notkun gervigreindarlausna við gagnaúrvinnslu og greiningu. 

  • Reynsla af verkefnastjórnun, áætlanagerð og eftirfylgni verkefna. 

  • Mjög góð nákvæmni og vandvirkni í vinnubrögðum. 

  • Góð greiningarhæfni, frumkvæði og geta til að vinna sjálfstætt og markvisst. 

  • Góð kunnátta í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti. 

Auglýsing birt1. september 2026
Umsóknarfrestur16. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Smáratorg 3, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.RannsóknirPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar