Verne
Verne

Gæðaeftirlitsstjóri (QA/QC Manager)

Verne Global óskar eftir að ráða reynslumikinn gæðaeftirlitsstjóra til að leiða gæðaeftirlit í umfangsmikilli uppbyggingu gagnavers sem unnið er samkvæmt „FIDIC Yellow Book“ hönnunar- og verktakasamningi.

Viðkomandi verður leiðandi fulltrúi fyrirtækisins í gæðamálum á verkstað og ber ábyrgð á að hönnun, innkaup, framkvæmdir, prófanir, gangsetning og afhending uppfylli samningsbundnar kröfur, tæknilegar þarfir, viðeigandi staðla og væntingar viðskiptavina.

Um er að ræða lykilhlutverk í að tryggja vandaða og örugga aðstöðu ásamt því að styðja við markmið verkefnisins hvað varðar framvindu og rekstrarárangur.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Yfirumsjón með gæðaeftirlitsferlum og að gæðakröfum sé fylgt.
  • Yfirfara gæðaáætlanir, skoðunar- og prófunaráætlanir (ITP), verklýsingar og tæknileg skilagögn.
  • Eftirlit með gæðum framkvæmda, skoðunum, prófunum, gangsetningu og undirbúningi afhendingar.
  • Utanumhald með frávikaskýrslum, göllum, úttektarlistum, úrbótum og skýrslugjöf.
  • Tryggja að gæðaskjöl, prófunargögn og afhendingargögn séu fullgerð, rekjanleg og hæf til úttektar.
  • Styðja við úttektir viðskiptavina og umsýslu með samþykktarferli verkefnisins.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Góð reynsla af stjórnun gæðaeftirlits í verkefnum tengdum gagnaverum, mannvirkjum, iðnaði, orkuvirkjum eða flóknum framkvæmdaverkefnum.
  • Góð þekking á hönnunar- og framkvæmdaverkefnum og FIDIC samningum.
  • Reynsla af gangsetningu, prófunum, afhendingu og gæðastjórnunarkerfum.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni, færni í samskiptum við hagaðila og lausnamiðað hugarfar.
  • Geta til að ná árangri í hröðu og krefjandi umhverfi.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð.
Auglýsing birt26. ágúst 2026
Umsóknarfrestur8. september 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Valhallarbraut 868, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SamningagerðPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Umsýsla gæðakerfaPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar