Landsvirkjun
Landsvirkjun
Landsvirkjun

Sérfræðingur í vinnsluáætlunum

Hugsar þú fram í tímann?

Við hjá Landsvirkjun leitum að öflugum liðsfélaga í teymi vinnsluáætlana. Teymið ber ábyrgð á skipulagi raforkuvinnslu með hámörkun á nýtingu innviða og auðlinda að leiðarljósi, ásamt mati og greiningu á framboðsgetu fyrirtækisins. Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á greiningarvinnu, líkönum og orkumálum og vill vinna að spennandi verkefnum í faglegu og hvetjandi starfsumhverfi.

Helstu verkefni:

  • Rekstur og þróun á bestunarlíkani Landsvirkjunar fyrir raforkuvinnslu
  • Greiningar og áætlanagerð fyrir vinnslukerfi Landsvirkjunar
  • Mat og eftirlit með framboðsgetu vinnslukerfisins
  • Umsjón með orkuvinnslugögnum

Við leitum að einstaklingi sem:

  • hefur háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. í verkfræði, stærðfræði eða á tengdum sviðum
  • hefur reynslu af greiningarvinnu og framsetningu gagna
  • hefur reynslu af notkun eða þróun líkana
  • býr yfir drifkrafti, frumkvæði og skipulagi og nýtur þess að hrinda verkum í framkvæmd
  • býr að sjálfstæði í störfum og jákvæðni í samskiptum
Auglýsing birt31. ágúst 2026
Umsóknarfrestur10. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Katrínartún 2, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.GagnagreiningPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Skipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar