

Yngri byggingarverkfræðingur eða byggingartæknifræðingur
JTV er 20 manna vinnustaður sem sérhæfir sig í framkvæmdastjórnun, verkefnastjórnun, umsjón og eftirliti og hönnunarstjórn byggingarframkvæmda fyrir opinbera verkkaupa, einkaaðila og verktaka. JTV kemur að ýmsum framkvæmdum eins og byggingu skóla, skrifstofuhúsnæðis, baðlóna, iðnaðarhúsnæðis, hótela og íbúða o.fl.
Við leitum að verk- eða tæknifræðingi í starf sem hentar vel þeim sem eru að byggja upp feril í mannvirkjagerð og vilja fjölbreytt verkefni, ábyrgð og að vinna með reyndu fólki.
Umsókn með ferilskrá sendist í gegnum Alfreð; kynningarbréf er valfrjálst. Umsóknir eru teknar til meðferðar jafnóðum og öllum umsóknum verður svarað innan viku frá umsóknarfresti. Farið er með umsóknir sem trúnaðarmál.
Starfsstöð: Hlíðasmári 2, 201 Kópavogi, og verkstaðir á vegum JTV.
Nánari upplýsingar veitir Jónas Halldórsson, [email protected]
- Eftirlit á verkstað: framvinda, gæði, úttektir og skráning í verkefnavef.
- Verkefnastjórn í samstarfi við verkefnastjóra: verkfundir, fundargerðir, samskipti við verkkaupa, hönnuði og verktaka.
- Áætlanir og kostnaðareftirlit: verkáætlanir, magntökur, yfirferð reikninga, aukaverk og breytingar.
- Skjalastýring og skýrslugerð: hönnunargögn, framvinduskýrslur og mánaðarskýrslur til verkkaupa.
- Stafræn skráning verkstaða, 360° myndatökur og drónamælingar.
- Þátttaka í tilboðs- og forvalsvinnu eftir þörfum.
- Önnur tilfallandi verkefni.
- B.Sc. í byggingarverkfræði, byggingartæknifræði eða sambærilegu námi — 0–5 ára starfsreynsla; nýútskrifuð koma til greina.
- Áhugi á framkvæmdum og vilji til að vera á verkstað.
- Nákvæmni, skipulag og góð samskiptafærni.
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti; bílpróf.
- Reynsla af framkvæmdum, iðnnám eða þekking á Procore, BIM eða MS Project er kostur, en ekki skylda.
- Fjölbreytt verkefni fyrir opinbera aðila, einkaaðila og verktaka, og að fylgja verki frá upphafi til enda.
- Samstarf við reynda verkefnastjóra og stuttar boðleiðir til stjórnenda.
- JTV skólann, innri fræðslu okkar í verkefnastjórnun mannvirkja, kostnaðareftirliti, áhættustýringu og ÖHU.
- Nýjustu verkfæri greinarinnar, Procore, 360° og dróna, BIM og gervigreind í daglegri vinnu.
- Samkeppnishæf laun.
Íslenska
Enska










